Tinna verður pirruð og undrandi yfir þessu athæfi í vinahittingum: „Virðist þessi hegðun vera orðin eðlileg“
„Mér finnst við vera stödd í einhvers konar baráttu, jafnvel stríði, við athyglisþjóf sem er samt sem áður alveg ofboðslega skemmtilegur, gagnlegur og fræðandi. Kannski er tómarúmið, eða óþægilega þögnin, einmitt það sem við þurfum á að halda. Að sitja aðeins í vandræðalegu augnabliki. Horfa í kringum okkur. Taka eftir umhverfinu og fólkinu. Láta hugann reika, fá hvíld frá áreiti. Fá góða hugmynd, eða enga hugmynd,“
segir Tinna Jökulsdóttir, fimm barna móðir, sjúkraþjálfari og íþróttasálfræðiráðgjafi, í grein sinni. Tinna er jafnframt höfundur barnaleikritsins Púkinn í herberginu, sem fjallar um skjánotkun barna, mannleg tengsl og mikilvægi raunverulegrar nærveru.
Í grein sinni fjallar Tinna um þá hegðun sem við könnumst líklega öll við að þurfa sífellt að hafa símann uppi við og kíkja á hann. Segist Tinna hafa hitt vinkonu sína á kaffihúsi, þær hafi faðmast og sest hvor á móti annarri og hugsunarlaust báðar tekið símann upp úr töskunum og lagt þá á borðið við hliðina á kaffibollunum. Spyr Tinna sig af hverju þar sem báðar eru með snjallúr sem titra ef einhver þarf nauðsynlega að ná í þær.
„Síminn þarf í raun ekki að liggja þarna, sjáanlegur, tilbúinn, innan seilingar. Er þetta vani, þörf eða jafnvel fíkn að finna fyrir ,,nærveru” símans?”
Tinna Jökulsdóttir.
Segir Tinna það vekja undrun sína og pirring þegar hún hitti vini eða vinkonur og þau eru sífellt að kíkja í símann. „Við höfum tekið dýrmætan tíma frá annasömu lífi okkar til að hittast, spjalla og njóta samverunnar, en það er eins og einhver ósýnileg öfl séu stanslaust að keppa um athyglina. Sá sem lætur undan stimplar sig út úr samræðunum og mér finnst það í raun ákveðin vanvirðing við samverustundina.”
„Það sem mér finnst áhugavert við þessar pælingar er að ég finn fyrir þessari togstreitu sjálf. Þrátt fyrir að vera orðin mjög meðvituð um skjánotkun og áhrif hennar, finn ég hversu sterkt síminn togar í mig. Um leið og ég upplifi dauða stund, vinkona bregður sér frá borðinu, ég er stopp á rauðu ljósi, sit á biðstofu eða það kemur stutt þögn í matarhléinu, er eins og ósjálfrátt viðbragð að grípa í símann. Ég þarf nánast að beita sjálfa mig hörku til að standast freistinguna. Líklega kannast margir við þetta, enda virðist þessi hegðun vera orðin eðlileg.”
Spyr Tinna sjálfa sig og lesandann um af hverju þetta gerist og hvenær þessar litlu eyður í deginum okkar hafi orðið að einhverju sem þarf að fylla upp í.
„Hvenær leiddist þér síðast? Ég man ekki eftir því hvenær mér leiddist síðast!”
Hefur farið í markvissu vinnu í að skoða hvert hún beinir athyglinni
Segir Tinna vangaveltur hennar hafa orðið til þess að hún hefur farið í markvissa vinnu við að veita því eftirtekt að hverju hún beini athygli sinni. „Þar liggur einmitt kjarninn, ég vil geta valið og tekið meðvitaða ákvörðun um hvað fangar athygli mína hverju sinni. Ég held að við þurfum öll á því að halda.”
Tinna segir fullorðna fólkið hafi alist upp við að leiðast stundum, farið í ferðalög eða verið í aðstæðum þar sem engin afþreying var í boði, en þrátt fyrir það finna sterka löngun til að fylla í eyðurnar. „Í dag er ,,að leiðast” hugtak í útrýmingarhættu. Börnin okkar þekkja ekkert annað en að hafa allan heiminn alltaf innan seilingar í símanum.”
Kemur inn á mikilvæg tækifæri í forvarnastarfi
Segir Tinna mikið og gott starf hafa verið unnið á sviði forvarna sem snúa að skjátíma barna og ungmenna: hvenær æskilegt er að barn fái síma, hvenær það megi fá aðgang að samfélagsmiðlum og hvernig eigi að setja þeim mörk. Allt eru þetta mikilvægar umræður. En hana langi að beina athyglinni að öðrum þætti. Athyglinni!
„Í starfi mínu með börnum og ungmennum hefur komið mér og þeim skemmtilega á óvart hversu áhrifaríkar einfaldar athyglisæfingar geta verið. Aðalatriðið er að nefna og finna hvar athyglin var á meðan á æfingunni stóð. Dæmi um slíka æfingu er að sitja í ró, líta mjög hægt til hægri og vinstri og taka meðvitað eftir hlutum í umhverfinu. Endurtaka svo og finna nýja hluti sem fanga athyglina. Oft er eins og ljósapera kvikni hjá krökkunum þegar þau átta sig á því að þau eru í algjörri núvitund, með fulla athygli á stundinni hér og nú. Það tekur tíma að þjálfa þessa færni og er hugsanlega bara fyrsta skrefið í að kveikja á tengingunni innra með okkur. Einnig getur þetta verið liður í að fræða ungmennin okkar um sín eigin gildi.”
Segir Tinna að hún telji að þarna liggi mikilvægt tækifæri í forvarnastarfi.
„Við höfum talað um þörfina á að takmarka skjátíma, en kannski þurfum við að efla færni barna og ungmenna í að beina athyglinni meðvitað, þola að láta sér leiðast og finna að þau hafi val um hvernig þau verja tíma sínum. Ég tel að þarna liggi möguleikar í að valdefla ungmennin okkar, hjálpa þeim að átta sig á eigin ábyrgð og um leið að efla þau í að taka meðvitaða ákvörðun um eigið val. Oft er nóg að hefja samtalið heima fyrir og að áherslan sé þessi meðvitund, frekar en eingöngu boð og bönn. Þetta gæti verið hluti af stóru myndinni þegar kemur að vali á athygli, nærveru og tengslum.”
Segir Tinna okkur öll þurfa að staldra við og átta okkur á því hverju við veljum að veita athygli. „Umhugsunarlaust látum við, börn og fullorðin, eftir hvötinni að kíkja í símann, en ég held að það sé kominn tími til að velja fólkið fyrir framan okkur, raunveruleg tengsl og okkar eigin gildi. Hverju erum við að missa af á meðan skjárinn étur upp athygli okkar? Athyglin er dýrmæt og við höfum val! Verum rétt tengd og veljum hvort annað.”
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗