Bróðir Epstein birtir óhugnanlegar myndir – Sagðar benda til þess að hann hafi verið myrtur

Bróðir bandaríska auðkýfingsins og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein hefur birt umfangsmikið safn ljósmynda úr krufningu bróður síns og fangaklefanum þar sem hann fannst látinn árið 2019.

Myndirnar hafa vakið nýjar spurningar um dánarorsök hans, en réttarmeinafræðingur telur að áverkar á hálsi Epstein geti bent til þess að hann hafi verið kyrktur.

Breska dagblaðið Daily Mail fjallar ítarlega um myndbirtinguna í dag, en Mark Epstein, bróðir auðkýfingsins, hefur lengi dregið opinberar niðurstöður um dauða hans í efa.

Sjá einnig: Sérfræðingur varpar sprengju eftir að hafa rannsakað krufningargögn Epsteins

Jeffrey Epstein fannst látinn í fangaklefa sínum í New York í ágúst 2019, þar sem hann beið réttarhalda vegna ákæru um kynferðislega misnotkun og mansal á stúlkum. Dauði hans var úrskurðaður sjálfsvíg.

Bendir á óvenjulega áverka

Michael Freeman, réttarmeinafræðingur sem hefur rannsakað ljósmyndirnar frá því í nóvember í fyrra, telur að áverkarnir á hálsi Epstein samræmist illa því að hann hafi hengt sig.

„Þetta lítur ekki út eins og hengingarfar,“ sagði Freeman þegar hann lýsti fyrstu viðbrögðum sínum við myndunum.

Hann vekur sérstaklega athygli á tveimur aðskildum áverkaförum á hálsi Epstein sem liggja í mismunandi stefnu. Að hans mati er erfitt að skýra hvernig slík för hefðu getað myndast við hengingu, þar sem þrýstingurinn frá snörunni ætti að beinast að sama punkti.

Freeman vekur einnig athygli á tvíhnýttu bandi úr efni sem fannst í fangaklefanum. Hann telur mögulegt að bandið hafi verið notað til að kyrkja Epstein aftan frá.

Þá segir hann að áverkar á andliti og öxlum kunni að benda til átaka.

Freeman hefur þó ekki sjálfur rannsakað lík Epstein og byggir niðurstöður sínar á ljósmyndum og fyrirliggjandi gögnum.

Myndirnar sýna aðstæður í klefanum

Á ljósmyndunum sem Mark Epstein hefur birt má einnig sjá aðstæður í fangaklefanum eftir dauðsfallið.

Rifin appelsínugul rúmföt liggja víða um klefann, meðal annars á gólfinu og við kojuna. Þar má einnig sjá lyf, svefntæki og hjartastuðtæki sem notað var þegar reynt var að endurlífga Epstein.

Sumar krufningarmyndanna eru svo óhugnanlegar að Daily Mail hefur ákveðið að birta þær ekki.

Opinber niðurstaða stendur óhögguð

Þrátt fyrir fullyrðingar Freemans hafa bandarísk yfirvöld ekki breytt niðurstöðu sinni um dauða Epstein.

Kristin Roman, réttarmeinafræðingurinn sem framkvæmdi krufninguna, hefur hafnað því að áverkarnir bendi til morðs. Hún segir brotamynstur í hálsi hans samræmast hengingu og að engin merki hafi fundist um átök.

Í skýrslu eftirlitsstofnunar bandaríska dómsmálaráðuneytisins árið 2023 kom fram að alvarleg vanræksla og mistök fangelsisstarfsmanna hefðu gert Epstein kleift að svipta sig lífi.

Freeman er þó ekki fyrsti sérfræðingurinn sem dregur þá niðurstöðu í efa. Réttarmeinafræðingurinn Michael Baden, sem Mark Epstein fékk til að fara yfir málið árið 2019, hefur einnig lýst þeirri skoðun að morð sé líklegri skýring en sjálfsvíg.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab