Arsenal minnist goðsagnar - Komst ítrekað í kast við lögin eftir ferilinn

Peter Storey, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, er látinn 81 árs að aldri. Arsenal minntist hans í gær.

Storey lék 501 leik fyrir Arsenal á árunum 1965 til 1977 og var lykilmaður í liðinu sem varð bæði Englands- og bikarmeistari árið 1971. Hann lék einnig 19 landsleiki fyrir England.

Storey lék bæði sem miðjumaður og bakvörður og var einkenni hans að vera grjótharður á vellinum. Hann lauk ferlinum hjá Fulham árið 1978 en komst síðar í kast við lögin og var dæmdur fyrir nokkur afbrot. 

Storey rak meðal annars vændishús í London og fékk skilorðsbundinn dóm fyrir það árið 1979. Ári síðar var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir peningafölsun. Hann hlaut einnig dóma fyrir bílaþjófnað og smygl á klámefni.

Arsenal mun minnast Storey fyrir heimaleikinn gegn Dortmund í Meistaradeildinni í næstu viku.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab