Óð inn á völlinn
Óvenjulegt atvik átti sér stað eftir leik Danmerkur og Noregs í Þjóðadeildinni í fótbolta á Parken-leikvanginum í Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Áhorfandi hljóp inn á völlinn í miðjum fögnuði norska liðsins eftir leik og virtist ætla að fella leikmenn liðsins.
Norðmaðurinn Leo Östigard þurfti að stökkva yfir manninn til að forðast árekstur áður en öryggisverðir fylgdu honum af vellinum.
Samkvæmt dönskum miðlum var um að ræða stuðningsmann með norskan trefil og hann hefur því líklega ætlað sér að taka þátt í fögnuði Norðmanna.
Danska knattspyrnusambandið tekur málið alvarlega og hefur hafið skoðun á atvikinu. Lágmarkssekt fyrir að hlaupa inn á völlinn er 10.000 danskar krónur, en ekki hefur verið ákveðið hvaða viðurlög bíða stuðningsmannsins.
„Ég veit ekki alveg hvernig mér tókst að stökkva yfir hann, en ég er feginn að hafa gert það,“ sagði Östigard í samtali við norska miðilinn Nettavisen.
Noregur vann leikinn 3:2 eftir að Danir höfðu komist í 2:0-forystu. Erling Haaland skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗