Sextíu ára sjónvarpsbann gæti verið á enda
Sérstakt sjónvarpsbann sem hefur verið við lýði í enskum fótbolta í um 60 ár gæti heyrt sögunni til.
Bannið felur í sér að ekki má sýna leiki í beinni útsendingu á laugardögum milli klukkan 15 og 17.30, en tilgangurinn er að vernda aðsókn að leikjum neðar í enska fótboltakerfinu.
Bannið á rætur sínar að rekja til sjöunda áratugar síðustu aldar þegar sjónvarpsútsendingar frá leikjum vöktu áhyggjur af því að færri myndu mæta á leikvanga.
Árið 1987 innleiddi UEFA reglu sem heimilaði þjóðum að banna sjónvarpsútsendingar frá fótboltaleikjum í tvo og hálfan klukkutíma á laugardögum, til að tryggja að sjónvarp drægi ekki úr aðsókn að leikjum, sérstaklega neðar í deildakerfinu og í yngri flokkum.
Nú er hins vegar rætt um að afnema bannið, meðal annars vegna þess að sífellt fleiri leikir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eru sýndir í beinni útsendingu.
Þegar nýir sjónvarpssamningar verða gerðir fyrir tímabilið 2029-30 gefst tækifæri til að endurskoða fyrirkomulagið.
Skoska úrvalsdeildin hefur þegar boðið sjónvarpsstöðvum að gera tilboð í sýningarrétt á öllum leikjum, þar á meðal þeim sem hefjast klukkan 15 á laugardögum.
Óttast áhrif á minni félög
Helstu rökin gegn afnámi bannsins snúa að áhrifunum á minni félög. Forsvarsmenn liða neðar í enska fótboltakerfinu óttast að færri áhorfendur mæti á leiki þeirra ef hægt verður að horfa á alla leiki stærri félaganna í sjónvarpi. Miðasala og tekjur af veitingasölu skipta mörg þessara félaga miklu máli.
Aðrir telja þó að streymisveitur geti skapað minni félögum ný tækifæri til tekjuöflunar. Sum félög hafa þegar breytt leiktímum sínum til að geta sýnt leiki í beinni útsendingu. Þá gæti afnám bannsins einnig dregið úr ólöglegu streymi.
Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um framtíð bannsins en búist er við að enska úrvalsdeildin og ensku deildakeppnirnar hefji alvarlegar viðræður um málið á næsta ári. BBC bendir þó á að þegar bannið hefur verið afnumið verði ólíklegt að hægt verði að taka það upp aftur.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗