Nýr stjóri United hafði tryggt sér útgönguleið
Knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino gat samið við þrjú félagslið samkvæmt sérstöku uppsagnarákvæði í samningi hans við bandaríska knattspyrnusambandið.
The Telegraph greinir frá.
Manchester United, sem Pochettino hefur nú tekið við, Tottenham og Real Madrid voru hin tvö félögin sem ákvæðið náði til.
Pochettino er sagður hafa krafist ákvæðisins þegar hann skrifaði undir fjögurra ára samning við bandaríska sambandið í ágúst síðastliðnum, eftir heimsmeistaramótið.
Aðeins þremur mánuðum síðar er hann tekinn við Manchester United.
Nafn Pochettino var meðal annars orðað við stjórastöðuna hjá Tottenham á síðasta tímabili þegar félagið barðist fyrir lífi sínu í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham réð Roberto De Zerbi þess í stað og tókst honum að halda liðinu í deildinni.
Pochettino stýrði Tottenham í fimm ár, frá 2014 til 2019. Undir hans stjórn hafnaði liðið í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2016 til 2017 og komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2019.
Fimm mánuðum eftir úrslitaleikinn var Pochettino hins vegar rekinn eftir slæma byrjun liðsins á tímabilinu og José Mourinho tók við af honum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗