„Laugin hefur aldrei verið jafn sóðaleg“

Ásmundur heimsótti laugina í gær og fann sig knúinn til að segja frá aðbúnaði sundlaugarinnar í Facebook-færslu. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Sigurður Bogi

Ásmundi Helgasyni, útgefanda og fastagesti í Laugardalslaug, finnst ansi dapurt um að litast þar þessa dagana.

Hann segir að aðbúnaði laugarinnar hafi lengi verið ábótavant en hafi versnað enn frekar upp á síðkastið. 

„Laugin hefur aldrei verið jafn sóðaleg og það hefur nú ekki alltaf verið gott ástand áður. Það er eins og það sé einhver ákvörðun um að láta hana drabbast niður,“ segir hann í samtali við mbl.is. 

Margt sem bæta má

Ásmundur heimsótti Laugardalslaug í gær og fann sig knúinn til að segja frá aðbúnaðinum þar í Facebook-færslu.

Segir hann langa bið hafa verið eftir armböndum sem notuð eru til að læsa skápum í búningsklefum, þá hafi aðgangsstýringarhliðið sem hleypir fólki inn í klefana ekki virkað og til að bæta gráu ofan á svart hafi bæði skápar og sturtur í karlaklefanum verið í ólagi.  

Þegar í laugina sjálfa var komið kom á daginn að barnalaugin var ísköld, drulluskítug og stútfull af rusli, að hans sögn. Þá hafi ekkert vatn verið í rennibrautunum. 

Ásmundur segir Laugardalslaug vera þá stærstu í Reykjavík og bendir á að mörg stór barnahverfi séu þar í kring og að langt þurfi að ferðast til að komast í næstu sundlaug. 

„Við sem heimsækjum Laugardalslaug oft í viku erum nánast hætt að hafa lyst á að fara þangað með krakkana,“ segir hann. 

Stutt í ákvörðun um niðurrif stúkunnar

Enn fremur hefur fimm pottum, tveimur sérklefum og eimbaði í Laugardalslaug verið lokað. Var það gert í sumar af öryggisástæðum en áhættumat vegna stúkumannvirkisins leiddi í ljós að ástand þess væri mjög bágborið.

Til stendur að rífa stúkuna en samkvæmt Steinþóri Einarssyni, sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar, liggur ekki fyrir hvenær það verður gert. Þá eigi eftir að leiða það í ljós hvort til frekari lokana á útisvæðinu komi.

Að hans sögn er stutt í að ákvörðun þess efnis verði tekin. „Á allra næstu dögum eða tveimur vikum verður orðið ljóst með hvaða hætti þetta verður gert,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Pólitískt athugasemdakerfi

Ekki hefur staðið á viðbrögðum við færslu Ásmundar en í athugasemdunum hafa Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar og Þorvaldur Davíð Kristjánsson varaborgarfulltrúi Viðreisnar bæði þakkað Ásmundi ábendingarnar og sagst ætla að skoða málið. 

Þá tók Dóra Magnúsdóttir, fyrrum varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, undir gagnrýni Ásmundar í athugasemdakerfinu og harmar skipulags- og áætlunarleysi. 

„En ef eitthvað gerist af því að borgarfulltrúar veittu tuði þínu eftirtekt þá er borginni enn verr stjórnað en ég ímyndaði mér,“ segir hún jafnframt. 

Ekki hefur náðst í forstöðumann Laugardalslaugar við gerð þessarar fréttar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab