Beint: Mótvindur
Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins bjóða klukkan dag á síðasta viðburð fundarraðarinnar Mótvindur sem SAF og samstarfsaðilar hafa staðið að um víða um land í október og nóvember.
Fundurinn fer fram kl. 14.00 - 17.00 í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel við Austurvöll, en hægt verður að fylgjast með honum í beinu streymi hér fyrir neðan:
DAGSKRÁ
-
Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Reykjavík Economics, kynnir skattspor ferðaþjónustunnar árið 2025.
-
Rannveig Grétarsdóttir, eigandi Elding hvalaskoðunar og stjórnarkona SAF, flytur ávarp.
-
Almar Guðmundsson, formaður Sambands íslenskra sveitafélaga og bæjarstjóri Garðabæjar, Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA og Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir, forstjóri og meðeigandi Deloitte á Íslandi taka þátt í sófaspjalli um efnahagsleg og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustunnar og áhrif skatta og gjalda á greinina. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, leiðir samtalið.
-
Seinni hluti fundarins verður helgaður samtali við fulltrúa stjórnmálaflokkanna um þau stóru mál sem liggja nú fyrir Alþingi og snerta ferðaþjónustuna. Umræðustjóri er Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF.
-
Þingmenn sem taka þátt í umræðum:
-
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Miðflokki
-
Pawel Bartoszek, Viðreisn
-
Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokki
-
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins
-
Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins
-
Guðmundur Ari Sigurjónsson, Samfylkingu
Fundarstjóri er Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗