Ákvörðunin vonbrigði að einhverju leyti

Róbert Farestveit er sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs Alþýðusambands Íslands.

Róbert Farestveit er sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs Alþýðusambands Íslands. Samsett mynd/ASÍ/mbl.is/Karítas

Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs Alþýðusambands Íslands, segir það að einhverju leyti vonbrigði að Seðlabankinn hafi ekki lækkað vexti sína í ljósi þess að kólnunarmerki séu farin að sjást í hagkerfinu. 

Róbert segir ákvörðunina ekki hafa komið á óvart og verið í samræmi við það sem ASÍ lagði fram í sinni hagspá.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda vöxtum bankans óbreyttum í morgun. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%.

Kólnunarmerki farin að koma fram

„Þetta eru að einhverju leyti vonbrigði í ljósi þess að bæði hefur fyrirsjáanleikinn aukist með endurnýjun kjarasamninga og yfirlýsing stjórnvalda gefur auðvitað væntingar um að verðbólgan fari hratt niður,“ segir hann.

„Ég hefði haldið að nefndin myndi allavega íhuga það að bregðast við út af því að við erum að sjá þessa kólnun,“ segir hann.

„Ég held að menn vilji fara að sjá vexti fara niður af því að þeir eru farnir að sjá kólnunarmerkin koma fram.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab