Óvenjuleg gjöf beið Karls konungs
Karl III. Bretakonungur við komuna að Harris-safninu í Preston 16. nóvember. Sama dag heimsótti hann kartöfluvagninn Spud Bros í borginni. Peter Powell/AFP
Karl III. Bretakonungur afþakkaði bakaða kartöflu með osti og baunum þegar hann heimsótti þekktan matarvagn í Preston á mánudag. Hann fór þó ekki tómhentur þaðan, því hekluð kartafla fékk að fylgja honum heim. Frá þessu greinir breska dagblaðið The Independent.
Konungurinn heimsótti bræðurna Jacob Nelson og Harley Nelson, sem reka matarvagninn Spud Bros á Flag Market í Preston. Bræðurnir hafa gert bökuðum kartöflum hátt undir höfði á samfélagsmiðlum og eru með yfir fimm milljónir fylgjenda á TikTok.
Sérstök konungleg kartafla
Í tilefni heimsóknarinnar 16. nóvember buðu bræðurnir upp á sérstaka konunglega kartöflu. Karl lét þó nægja að kynna sér hráefnið.
„Við sýndum honum ýmsar tegundir af kartöflum og breskar afurðir sem við notum. Hann sagðist kunna að meta bakaðar kartöflur,“ sagði starfsmaðurinn Laura Smith við fjölmiðilinn.
Þótt konungurinn hafi afþakkað kartöfluna með ostinum og baununum tók hann við lítilli heklaðri kartöflu með uppörvandi skilaboðum um að hjálpa öðrum, með einni kartöflu í einu.
„Við skulum ekki ræða það“
Karl fékk einnig áritaða treyju knattspyrnufélagsins Preston North End, sem fyrirtæki bræðranna styrkir.
Þegar konungurinn spurði hvernig liðinu gengi var svar Jacobs Nelsons stutt og laggott:
„Við skulum ekki ræða það.“
Bræðurnir tóku heimsóknina upp með myndavélum sem festar voru á hatta þeirra. Konunglega heimsóknin fékk því einnig að njóta sín hjá fylgjendum kartöfluvagnsins á samfélagsmiðlum.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗