Þurfa að grípa til frekari aðhaldsaðgerða

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra við kynningu á hallalausu fjárlagafrumvarpi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjármálaráðherra segir ekkert benda til þess að markmið ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög náist ekki. Til þess þurfi að grípa til aðgerða en þær séu af þeirri stærðargráðu að það sé fullkomlega raunhæft.

Líkt og greint hefur verið frá spáir Seðlabanki Íslands halla á ríkissjóði þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi boðað hallalaus fjárlög. Í ritinu Peningamálum gerir bankinn ráð fyrir að hallinn nemi 0,3% af landsframleiðslu, sem nemur 16,5 milljörðum miðað við spá bankans um að landsframleiðsla verði 5.520 milljarðar á næsta ári.

Í fjárlagafrumvarpinu er hins vegar reiknað með afgangi sem nemur 0,1% af landsframleiðslu. Munurinn er því 0,4 prósent af landsframleiðslu eða um 22 milljarðar.

Kom ekki á óvart

„Það er auðvitað mjög ánægjulegt að sjá að við erum greinilega að ná árangri varðandi verðbólguna og spá þeirra er um mjög bratta lækkun og þeir staðfesta í sjálfu sér það sem við höfum verið að segja að undirliggjandi verðbólguþrýstingur er lítill og fallandi og það er þá fyrst og fremst óvissa á alþjóðamörkuðum sem skapar óvissu,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra í samtali við mbl.is

„Svo eru þeir auðvitað að færa niður hagspána sína örlítið. Það eru auðvitað ekki góðar fréttir en í sjálfu sér ekki fréttir sem koma á óvart. Við fylgjumst auðvitað grannt með tekjuþróun ríkisins, sem að einhverju leyti er mælikvarði á þetta.“

„Agnarsmáar tölur miðað við þjóðarbúið“

Spurður hvernig tilfinningin sé, nú þegar mikið hefur verið gert úr áætlun um hallalaus fjárlög, að horfa til þess að markmiðið náist jafnvel ekki, svarar Daði:

„Við höfum auðvitað vitað af þessari þróun og tekið tillit til hennar. Það er ekkert sem bendir til þess að við náum ekki þessu markmiði. Það þarf aðgerðir til, ég ætla ekki að gera lítið úr því, en þær eru af þeirri stærðargráðu að það er fullkomlega raunhæft.“

Hvernig aðgerðir?

„Fyrst og fremst, og eingöngu, þá erum við að skoða aðhaldsaðgerðir.“

Hvað myndi það þýða fyrir fólkið í landinu?

„Þetta eru auðvitað ekki stórar tölur. Þú verður að átta þig á því að þó að 10 milljarðar séu stór tala fyrir mig og þig þá eru þetta agnarsmáar tölur miðað við þjóðarbúið. Þannig að þetta eru þá smá aðgerðir hér og þar.“

Aðgerðirnar verði ekki á tekjuhliðinni en hann geti ekki útilokað að þær hafi áhrif á einhverja landsmenn.

„Það er auðvitað ekki þannig að það séu til einhver ríkisútgjöld sem ekki hafa áhrif á einhvern. En við reynum eftir fremsta megni að láta áhrifin vera eins lítil og mögulegt er.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab