Barcelona hefur áhuga en skortir fjármuni

Barcelona hefur áhuga á að fá Rayan Ait-Nouri, bakvörð Manchester City, í janúar. Football Insider greinir frá.

City er tilbúið að selja þennan 25 ára gamla landsliðsmann Alsír fyrir 30 milljónir punda en Barcelona hefur ekki efni á að greiða þá upphæð. Félagið vill því fá hann á láni með kaupmöguleika.

Ait-Nouri hefur ekkert spilað í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er á eftir Josko Gvardiol og Nico O'Reilly í goggunarröðinni. City keypti hann frá Wolves fyrir 36 milljónir punda í fyrra.

Barcelona gæti þurft að selja Alejandro Balde áður en hægt væri að fá Ait-Nouri. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab