Lagði á ráðin um að myrða Trump eða Biden – Gekk beint í gildru FBI

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 13:40

Asif Merchant var dæmdur í 27 ára fangelsi.

Pakistanskur kaupsýslumaður hefur verið dæmdur í rúmlega 27 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að skipuleggja morð á háttsettum bandarískum stjórnmálamanni.

AP-fréttastofan segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Joe Biden, fyrrverandi forseti, hafi verið meðal hugsanlegra skotmarka.

Maðurinn, Asif Merchant, er 48 ára og var sakfelldur fyrr á þessu ári fyrir að leggja á ráðin um leigumorð og tilraun til hryðjuverka. Dómur í málinu var kveðinn upp í gær.

AP greinir frá því að Merchant hafi við réttarhöldin viðurkennt að hafa kannað hvar Donald Trump héldi kosningafundi og rætt möguleikann á að myrða hann á einum þeirra. Hann greiddi mönnum, sem hann taldi vera leigumorðingja, fimm þúsund dollara fyrir að koma áformunum í framkvæmd.

Mennirnir reyndust hins vegar vera alríkislögreglumenn í dulargervi.

Merchant var handtekinn í Texas 12. júlí 2024, aðeins degi áður en Trump varð fyrir morðtilraun á kosningafundi í Pennsylvaníu. Málin tvö tengjast þó ekki.

Við réttarhöldin hélt Merchant því fram að hann hefði verið undir þrýstingi frá útsendara írönsku byltingarvarðanna, sem hefði hótað fjölskyldu hans í Íran. Hann sagðist hafa fylgt fyrirmælum sem hann fékk í þeirri trú að bandarísk yfirvöld myndu stöðva áformin.

Að hans sögn höfðu Trump, Biden og Nikki Haley, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, verið nefnd sem hugsanleg skotmörk.

Írönsk stjórnvöld hafa hafnað því að hafa staðið að áformum um að myrða bandaríska embættismenn.

Saksóknarar töldu skýringar Merchant ekki trúverðugar og kröfðust þess að hann yrði dæmdur í lífstíðarfangelsi.

Dómarinn Eric Komitee hafnaði þeirri kröfu en sagði brotið einstaklega alvarlegt. Hann taldi Merchant vissulega hafa haft áhyggjur af fjölskyldu sinni en jafnframt verið mjög ákveðinn í að vinna Bandaríkjunum mein.

Verjandi Merchant hefur tilkynnt að dómnum verði áfrýjað.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab