Vilhjálmur sakar ríkisstjórnina um aðför að grundvallarmannréttindum

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 13:42

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður. Mynd: DV/KSJ

Frumvarp um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi var afgreitt úr ríkisstjórn þann 13. nóvember síðastliðinn. Frumvarpið felur í sér auknar valdheimildir lögreglu. Ein breytingin er sú að heimilt er að gera upptæk verðmæti sem ætla má að séu afrakstur refsiverðrar háttsemi án þess að sakfellt sé fyrir tiltekið brot og önnur að hámarkstími gæsluvarðhalds er aukinn úr 12 vikum í 6 mánuði ef rannsókn beinist að broti sem getur varðað 10 ára fangelsi. Nánar má lesa um frumvarpið hér. 

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður segir frumvarpið fela í sér aðför að grundvallarmannréttindum. Hann segir í aðsendri grein á Vísir.is: 

„Frumvarp ríkisstjórnarinnar ,,Um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi” er newspeak, þar sem grafið er undan grundvallarmannréttindum undir því yfirskyni að ríkisstjórnin sé að segja skipulagðri brotastarfsemi stríð á hendur. Afleiðingarnar eru róttækar breytingar á réttindum allra, en ekki sértækar breytingar á réttindum fárra, eins og heiti frumvarpsins gefur til kynna.

Ástæðan er meðal annars eftirfarandi nýmæli í frumvarpinu sem fela í sér grundvallarbreytingar á réttarskipan á Íslandi: Í fyrsta lagi er heimilt að gera eignir upptækar án sakfellingar fyrir tiltekið brot ef ,,ætla má” að þær séu ávinningur af refsiverðri háttsemi. Í öðru lagi er lögreglu heimilað að grípa til tiltekinna íþyngjandi rannsóknaraðgerða án dómsúrskurðar, en aðkoma dómstóla hefur hingað til verið ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir slíkum aðgerðum á Íslandi. Í þriðja lagi er hámarkstími gæsluvarðhalds lengdur úr 12 vikum í 6 mánuði (sem er meira en tvöföldun). Í fjórða lagi frestur lögreglu til þess að afhenda verjendum málsgögn lengdur úr þremur vikum í sex vikur.“

Vilhjálmur bendir á að frumvarpið sé samið í dómsmálaráðuneytinu með samráði við aðila á borð við lögreglu, Europol, Eurojust, lögregluembætti og saksóknaraembættin. Jafnar hann því saman við að Miðflokknum yrði falið að semja lagafrumvarp um útlendingamál í samráði við samtökin Skjöld Íslands, Ísland – Þvert á flokka og Fratelli d´Italia. 

Vilhálmur segir: 

„Það er ekki ósanngjarn krafa að lögreglan læri að fara með núverandi valdheimildir áður en henni er treyst fyrir auknum heimildum. Annað er ábyrgðarleysi sem má öldungis jafna til þeirrar hegðunar að afhenda óvitum rafbyssur og kalla þær rafvarnavopn með þekktum afleiðingum.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab