44 ára og nýbúin að eignast þriðja barnið

Anne Hathaway beraði bumbuna á rauða dreglinum. Nú er hún þriggja barna móðir. AFP/KEVIN WINTER

Leikkonan Anne Hathaway og eiginmaður hennar, Adam Shulman eignuðust barn nýlega. Hathaway er nýorðin 44 ára og er þetta hennar þriðja barn. Hathaway var áberandi á rauða dreglinum á meðgöngunni en hún var að kynna nokkrar myndir. 

Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ birti myndir af Hathaway á rölti með barnið í burðarpoka í New York. Með í för var vinkona Hathaway sem tók af henni myndir. Litla barnið var með vínrauða húfu með bleikum dúski. Það var að öðru leyti vel pakkað inn í burðarpokann og kápu móður sinnar. 

Ólétt eftir fertugt

Hathaway og Shulman gengu í hjónaband árið 2012 og eiga þau fyrir tvo syni, þá Jonathan tíu ára og Jack sem eru sex ára. 

Í sumar opnaði leikkonan sig hvernig það væri að vera ólétt eftir fertugt. Viðhorf hennar til lífsins hefur breyst. „Ég áttaði mig á því að þetta er ekki æfing. Þetta er allt að gerast núna,“ sagði Hathaway og bætti við að hún væri orðin betri í að njóta augnabliksins og taka engu sem sjálfsögðum hlut.

Anne Hathaway glerfín á meðgöngunni.

Anne Hathaway glerfín á meðgöngunni. AFP

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab