Arsenal-goðsögn látin

Peter Storey.

Peter Storey. Ljósmynd/Arsenal

Peter Storey, fyrrverandi leikmaður hjá enska knattspyrnufélaginu Arsenal, er látinn. Hann lék 501 leik fyrir félagið í öllum keppnum á árunum 1965 til 1977 og skoraði 17 mörk.

Storey var lykilmaður í liði Arsenal sem vann tvöfalt, en félagið varð bæði Englandsmeistari og bikarmeistari tímabilið 1970 til 1971 undir stjórn Bertie Mee. Hann lék alls 19 landsleiki fyrir England.

„Allir hjá Arsenal syrgja fráfall Peter Storey. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans og ástvinum á þessum erfiðu tímum,“ sagði í tilkynningu félagsins.

Storey hóf ferilinn sem hægri bakvörður en færðist síðar inn á miðjuna. Hann er áttundi leikjahæsti leikmaður í sögu Arsenal.

Hann lék einnig með Fulham eftir að hafa yfirgefið Arsenal árið 1977 og lagði skóna á hilluna síðar sama ár.

Líf Storey eftir knattspyrnuferilinn var þó stormasamt. Hann hlaut meðal annars fangelsisdóma fyrir rekstur vændishúss, aðild að fölsunaraðgerð og tilraun til að smygla klámefni til Bretlands.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab