Leki úr Deutsche Bank bendir til peningaþvættis

Deutsche Bank sleit í kjölfarið áralöngu viðskiptasambandi sínu við MKB.

Deutsche Bank sleit í kjölfarið áralöngu viðskiptasambandi sínu við MKB. AFP

Gögn sem lekið var úr Deutsche Bank benda til þess að rússneskur hópur, grunaður um peningaþvætti, hafi nýtt sér ungverska bankann MKB til að flytja fé milli landa. Kaupsýslumenn nátengdir Viktor Orbán, þáverandi forsætisráðherra Ungverjalands, réðu yfir bankanum.

Þetta kemur fram í umfjöllun ungverska rannsóknarmiðilsins Direkt36 í dag.

Samkvæmt Direkt36 flutti hópurinn að minnsta kosti 1,7 milljarða evra á árunum 2017 til 2020, jafnvirði um 233 milljarða króna. Miðillinn segir fjölmargt í viðskiptunum benda til skipulagðrar brotastarfsemi. Af þeim bönkum sem komu við sögu átti MKB stærstan hlut í millifærslunum, bæði sem sendandi og viðtakandi.

Financial Times, Le Monde og New York Times voru meðal fjölmiðla sem birtu í gær fréttir byggðar á milljónum skjala og tölvupósta sem lekið var úr Deutsche Bank.

Gögnin varpa ljósi á umdeilda viðskiptahætti þýska bankans á árum áður. Athugun fjölmiðlanna leiddi í ljós að nokkur stórfyrirtæki sem komu við sögu tengdust rússneska auðjöfrinum Oleg Deripaska, sem sætir viðskiptaþvingunum.

Samkvæmt Direkt36 flutti hópurinn að minnsta kosti 1,7 milljarða evra á árunum 2017 til 2020, jafnvirði um 233 milljarða króna. AFP

Fimm félög áttu reikninga hjá MKB

Flest þeirra fimmtán félaga sem gegndu lykilhlutverki í viðskiptum hópsins voru skráð í Hong Kong eða á Kýpur. Fimm þeirra áttu reikninga hjá MKB þótt engin tengsl þeirra við Ungverjaland væru sýnileg. Inn- og útgreiðslur á þessum reikningum námu samtals að minnsta kosti 460 milljónum evra, jafnvirði um 63 milljarða króna, að sögn Direkt36.

Ungverska ríkið átti hlut í MKB en árið 2017 náðu kaupsýslumenn nákomnir Orbán yfirráðum í bankanum. Orbán var þá forsætisráðherra og hliðhollur stjórnvöldum í Moskvu.

MKB veitti síðar fjárstuðning nokkrum pólitískum bandamönnum hans á ysta hægri væng erlendis, þar á meðal Marine Le Pen í Frakklandi.

Deutsche Bank sleit áralöngu viðskiptasambandi

MKB kvaðst hafa lokað flestum reikningum aflandsviðskiptavina sinna árið 2019. Samkvæmt Direkt36 taldi Deutsche Bank þó að viðskiptavinir með heimilisfesti utan Ungverjalands ættu enn stóran hlut í færslum MKB og að hlutfallið hefði lítið lækkað.

Deutsche Bank sleit í kjölfarið áralöngu viðskiptasambandi sínu við MKB. Að sögn Direkt36 greip þá um sig „skelfing“ innan ungverska bankans uns hann náði sambærilegu samkomulagi við hollenska bankann ING.

Ungverskir fjölmiðlar hafa áður fjallað um fjármögnun MKB og arftaka hans, MBH Bank, á verkefnum sem tengjast bandamönnum Orbáns.

Greiðslur til austurrískra flugfélaga

Austurrískir fjölmiðlar greindu einnig frá því í dag að í gögnunum kæmu fram upplýsingar um greiðslur til nokkurra austurrískra fyrirtækja frá hópi sem grunaður er um peningaþvætti. Meðal viðtakenda voru einkaþotufélagið Avcon Jet og þyrluþjónustan Wucher.

Að sögn austurríska blaðsins Der Standard tengdist eitt félaganna í hópnum, Dempshire Corporation, Deripaska. Félagið var skráð í Hong Kong og flutti meira en 130 milljónir evra á þremur árum, jafnvirði um 18 milljarða króna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab