Rannsaka meint kynferðisbrot Julio Iglesias

Iglesias, sem er 83 ára, segir ásakanirnar „með öllu ósannar“. AFP

Spænskur dómstóll hóf í dag rannsókn á meintum kynferðisbrotum söngvarans Julio Iglesias í kjölfar kæru tveggja kvenna sem áður störfuðu hjá honum.

Fyrri kæra þeirra leiddi ekki til rannsóknar þar sem talið var að málið félli utan lögsögu spænskra dómstóla. Iglesias hafnar ásökununum.

Konurnar segja að Iglesias hafi beitt þær kynferðisofbeldi og annars konar ofbeldi árið 2021 þegar þær störfuðu hjá honum á Bahamaeyjum og í Dóminíska lýðveldinu. Önnur sinnti heimilisstörfum og hin starfaði sem sjúkraþjálfari. Meint brot áttu sér stað á landareignum söngvarans í löndunum tveimur, að sögn kvennanna.

Iglesias, sem er 83 ára, segir ásakanirnar „með öllu ósannar“. Hann kveðst aldrei hafa beitt konu ofbeldi eða þvingunum né sýnt konu vanvirðingu.

Sum hinna meintu brota kunna að vera fyrnd

Í tilkynningu frá spænska dómstólnum Audiencia Nacional í Madríd segir að rannsóknin beinist að meintum „brotum gegn kynfrelsi“. Undir það hugtak falla meðal annars kynferðisárásir. Einnig verði rannsakað hvort Iglesias hafi valdið konunum líkamsmeiðingum eða beitt þær vanvirðandi meðferð.

Dómstóllinn tekur fram að sum hinna meintu brota kunni að vera fyrnd. Hann hafnaði þeim hluta kærunnar sem laut að meintu mansali og brotum gegn réttindum starfsmanna.

Ljósmynd sýnir mar á handlegg

Að mati dómstólsins kom fram í framburði annarrar konunnar nægilegt tilefni til að hefja sakamálarannsókn.

Meðal gagna málsins er ljósmynd sem önnur kvennanna lagði fram. Á henni sést mar á handlegg hennar sem samrýmist því að gripið hafi verið fast um handlegginn, að sögn dómstólsins. Á myndinni sjást einnig tvö för á læri sem gætu verið bitför eftir mann. Konan segir förin hafa komið til þegar hún var þvinguð til þátttöku í kynferðislegum athöfnum.

Báðar konurnar hafa verið boðaðar fyrir dóminn 3. febrúar.

Saksóknari taldi málið geta komið til meðferðar á Spáni

Meðferð fyrri kærunnar lauk í janúar. Þá var talið að spænskir dómstólar hefðu ekki lögsögu í málinu þar sem meint brot hefðu verið framin á Bahamaeyjum og í Dóminíska lýðveldinu.

Réttindasamtökin Women’s Link Worldwide, sem koma fram fyrir hönd kvennanna, töldu að spænskir dómstólar gætu rannsakað meint brot erlendis ef málið hefði nægileg tengsl við Spán. Bentu samtökin á að fremdi spænskur ríkisborgari brot í öðru landi mætti rétta í málinu á Spáni, að því tilskildu að verknaðurinn væri einnig refsiverður í landinu þar sem hann var framinn.

Konurnar lögðu fram nýja kæru í september. Í kjölfarið skilaði embætti saksóknara áliti þess efnis að Audiencia Nacional gæti tekið málið til meðferðar. Dómstóllinn sérhæfir sig meðal annars í flóknum málum og málum sem varða brot spænskra ríkisborgara erlendis.

Iglesias hefur hlotið Grammy-verðlaun og selt yfir 300 milljónir hljómplatna á ferli sínum. Samkvæmt AFP hefur enginn annar latínlistamaður selt fleiri plötur á heimsvísu. Sonur hans er söngvarinn Enrique Iglesias.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab