Mætti með öxi og lagði bandaríska herflugvél í rúst

48 ára karlmaður hefur verið ákærður í Bandaríkjunum fyrir að hafa brotist inn í bandaríska herflugvél á Shannon-flugvelli á Írlandi og valdið svo miklum skemmdum að ekki verður hægt að fljúga vélinni aftur.

Maðurinn er sagður hafa undirbúið árásina mánuðum saman. Breska dagblaðið The Guardian greinir frá málinu í dag, en atvikið átti sér stað 11. apríl síðastliðinn.

Lagði vélina í rúst

Samkvæmt ákæru braust maðurinn, Daithi O’Corrain, inn á flugvallarsvæðið um klukkan 4:40 að morgni og komst inn í C-130 Hercules-flutningavél bandaríska hersins.

Vélin, sem var á leið til hernaðarverkefnis í öðru landi, er metin á um 60 milljónir Bandaríkjadala, eða rúmlega sjö milljarða íslenskra króna.

Samkvæmt ákærunni braut O’Corrain upp læsingarbúnað á afturhurð flugvélarinnar áður en hann lét til skarar skríða.

Hann er sakaður um að hafa brotið mælitæki í stjórnklefanum, skorið í sundur vökvaleiðslur og komið málmkúlum fyrir í eldsneytistönkum.

Bandarískir saksóknarar segja skemmdirnar svo umfangsmiklar að ekki verður hægt að fljúga vélinni aftur.

Skipulagði árásina mánuðum saman

Rannsóknin bendir til þess að árásin hafi verið vandlega undirbúin. O’Corrain er sagður hafa leitað á netinu að upplýsingum um smíði flugvélarinnar og leiðum til að komast óséður inn á flugvallarsvæðið.

Hann hafði einnig gerst áskrifandi að forriti sem sýnir flugumferð í rauntíma og pantað gallín, málm sem getur valdið alvarlegum skemmdum á áli.

O’Corrain, sem stuðningsmenn lýsa sem friðarsinna, var handtekinn af írsku lögreglunni eftir atvikið. Í fjáröflun sem vinir hans segjast standa að kemur fram að hann hafi viljað mótmæla stríði Bandaríkjanna við Íran og stuðningi þeirra við hernað Ísraela á Gasasvæðinu.

„Þetta voru ekki skemmdarverk framin í skyndilegri hvatvísi,“ sagði James Barnacle, yfirmaður FBI í New York.

Ákæran gegn O’Corrain var gerð opinber í gær. Hann er ekki í haldi bandarískra yfirvalda en á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi verði hann fundinn sekur.

Ekki liggur fyrir hvort Bandaríkin hafi farið fram á framsal mannsins, en framsalssamningur er í gildi milli ríkjanna. Þar sem hann hefur þegar verið ákærður á Írlandi vegna sama atviks gæti framsal þó reynst lagalega flókið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab