Kona í þjálfarateymi United

Silvia Tuya.

Silvia Tuya. Ljósmynd/@silviatuya_pf

Í fyrsta sinn í sögu enska knattspyrnufélagsins Manchester United verður kona í þjálfarateymi karlaliðsins.

Silvia Tuya, 46 ára styrktar- og þolþjálfari kemur til United með Mauricio Pochettino, sem er tekinn við sem knattspyrnustjóri liðsins.

Hún hefur starfað með honum hjá bandaríska karlalandsliðinu frá október 2024 og varð þá fyrsta konan til að starfa í þjálfarateymi þess.

Tuya er með doktorsgráðu í íþróttavísindum og hefur víðtæka reynslu af þjálfun og íþróttafræði. Hún hefur meðal annars kennt við háskólann í Barcelona og starfað hjá kvennaliði Levante á Spáni.

Hjá Manchester United mun hún vinna náið með Sebastiano Pochettino, syni knattspyrnustjórans, að styrktar- og þolþjálfun leikmanna.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab