Ráðuneytið stendur við fjögurra milljarða matið
Tillagan nær meðal annars til baðhúsa, baðstaða, gufubaðsstofa og heilsulinda sem nú eru í lægra skattþrepinu. Baðlón eru talin vega þar þyngst. Ljósmynd/Colourbox
Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur áfram að hækkun virðisaukaskatts á aðgangseyri að baðlónum og heilsulindum úr 11% í 24% skili ríkissjóði um fjórum milljörðum króna í auknar tekjur á næsta ári.
Ráðuneytið gerir ráð fyrir að miðaverð geti hækkað en telur óvíst hversu stóran hluta skattahækkunarinnar rekstraraðilar velti yfir á gesti.
Þetta kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins sem birt var á vef Alþingis í dag. Efnahags- og viðskiptanefnd óskaði eftir skýringum á forsendum áætlunarinnar við meðferð frumvarps um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga ársins 2027.
Tillagan nær meðal annars til baðhúsa, baðstaða, gufubaðsstofa og heilsulinda sem nú eru í lægra skattþrepinu. Baðlón eru talin vega þar þyngst.
Erfitt að greina miðasölu frá öðrum tekjum
Við mat á tekjum ríkissjóðs þurfti ráðuneytið að áætla hversu miklu gestir verja til að kaupa aðgang að baðlónum. Í virðisaukaskattsskýrslum er velta sundurliðuð eftir skattþrepum, en þar kemur ekki fram hversu mikið af tekjum í lægra þrepinu er af miðasölu og hversu mikið af annarri starfsemi, svo sem veitingasölu og gistingu.
Ráðuneytið bar því meðal annars saman veltutölur Hagstofunnar, upplýsingar um veltu stærstu rekstraraðilanna eftir skattþrepum og ársreikninga fyrirtækja í greininni. Mismunandi aðferðir gáfu svipaðar niðurstöður. Ráðuneytið telur því ekki sérstakt tilefni til að endurskoða fjögurra milljarða áætlunina, þótt ýmsar forsendur hennar séu óvissar. Áætlunin tekur til beinna áhrifa breytingarinnar á virðisaukaskattstekjur ríkisins.
Fjölgun baðlóna getur haft áhrif á miðaverð
Í útreikningunum er gert ráð fyrir að hækkun miðaverðs geti dregið úr aðsókn. Ráðuneytið bendir þó á að baðlónum hafi fjölgað og þau stækkað á undanförnum árum. Rekstraraðilar hafi því hag af því að laða að fleiri gesti og nýta aðstöðuna betur. Við þær aðstæður kunni að borga sig að taka á sig hluta skattahækkunarinnar.
Rekstraraðilar hafa áður lýst áhyggjum af áhrifum hækkunarinnar á fjárfestingu.
Bryndís Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Laugaráss Lagoon, sagði í samtali við Morgunblaðið í október að áformin hefðu áhrif á hvernig fyrirtækið mæti frekari fjárfestingar.
Skúli Mogensen, stofnandi sjóbaðanna í Hvammsvík, sagði fyrirhugaða hækkun eiga þátt í að uppbyggingu þar hefði verið slegið á frest.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗