Vera Illuga fagnaði með pabba sínum
Illugi Jökulsson, Vera Illugadóttir og Guðrún S. Gísladóttir voru í stuði í útgáfuboði Illuga. Samsett mynd
Rithöfundurinn og fjölmiðlamaðurinn, Illugi Jökulsson, fagnaði nýútkominni bók sinni á dögunum í bókabúð Forlagsins úti á Granda. Fólk víða að úr þjóðfélaginu mætti út á Granda og fögnuðu með Illuga.
Fjölmiðlakonan Vera Illugadóttir, dóttir Illuga mætti í gleðskapinn. Það gerði einnig Guðrún Snæfríður Gísladóttir leikkona, eiginkona Illuga. Á svæðinu voru einnig hjónin Þórhildur Garðarsdóttir fjármálastjóri Michelson og formaður KR og Egill Örn Jóhannsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Forlagsins. Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar var einnig mætt til þess að fagna
Hamfarir
Í bókinni Eldsins ógn skrifar Illugi Jökulsson um mestu náttúruhamfarir Íslandssögunnar, Skaftárelda og móðuharðindin. Á Íslandi lentu þúsundir á vergang; straumar flóttafólks bárust vítt og breitt um landið, bústofninn féll og hungursneyð geisaði meðal landsmanna. Fimmti hluti þjóðarinnar dó á árum Skaftárelda og móðuharðinda enda brugðust yfirvöld við seint og illa.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Samkvæmislífið,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗











