Rannsókn lokið: Tveir með réttarstöðu sakbornings

Innlent | mbl | 18.11.2026 | 12:54 | Uppfært 13:13

Frá aðgerðum björgunarsveita á Breiðamerkurjökli.

Frá aðgerðum björgunarsveita á Breiðamerkurjökli. Ljósmynd/Landsbjörg

Rannsókn á banaslysi á Breiðamerkurjökli í ágúst 2024, þar sem ferðamaður lést við íshellaskoðun eftir að snjófarg féll ofan á hann, er lokið. Konan hans slasaðist einnig.  

Þorsteinn M. Kristinsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir að málið sé komið til ákærusviðs embættisins og að tveir hafi réttarstöðu sakbornings í málinu. 

RÚV sagði fyrst frá því að málið væri komið til ákærusviðs. 

Maðurinn sem lést var bandarískur ferðamaður sem var þar ásamt þungaðri konu sinni sem flutt var slösuð með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Barnið sakaði ekki. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab