Lýsir ógeðfelldu ástandi í Laugardalslaug – Borgarfulltrúar bregðast við

Kristinn H. Guðnason

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 13:00

Ásmundur er miður sáttur við aðbúnaðinn og óþrifnaðinn í Laugardalslauginni. Myndir/Wikipedia/Þróttur

Ásmundur Helgason, eigandi Gráa kattarins, fer ófögrum orðum um ástandið í Laugardalslauginni. Þar sé allt meira og minna skítugt og bilað, vatnsrennslið lítið og hitinn á vatninu sömuleiðis. Eins og stefnan sé að fæla fólk frá.

„Laugardalslaug er orðin nánast algerlega óboðleg gestum,“ segir Ásmundur í færslu á samfélagsmiðlum.

Reifar hann þar ýmis atriði varðandi aðstæður og aðbúnað í lauginni sem séu léleg.

Meðal annars að engin armbönd séu til og gestir séu hvattir til að deila skápum. Þau armbönd sem hann fékk loksins var fest saman með gúmmíteygju.

Þá hafi krakkalaugin verið ísköld miðað við hvernig hún var á sama tíma í fyrra, sem og drulluskítug og stútfull af rusli.

„Við flæktumst í hárklessum og syntum í gegnum allskonar plástraplastdrasl, mæli ekki með að fara í kaf með sundgleraugum, sjón er sögu ríkari,“ segir Ásmundur.

Ásmundur segir að sturturnar í karlaklefanum hafi líka margar verið bilaðar og mörgum „sóðabrókum“ sleppt beint í laugina án þess að þvo sér. En óþrifnaður gesta er vandamál sem fleiri sundlaugagestir hafa nefnt, ekki aðeins í Laugardalslaug.

Markmiðið að fæla frá?

Þá séu margir skáparnir bilaðir og/eða númerslausir, hillurnar við sturturnar undir gleraugu og sápu séu horfnar, ekkert vatn sé í rennibrautunum og aðgangshliðin séu biluð. Reyndar hafi Ásmundur og fjölskylda hans grætt á því síðastnefnda, því þau þurftu ekki að borga inn.

„Það er eins og markmiðið sé að fæla okkur frá því að koma,“ segir Ásmundur. „Viðhaldið hefur verið slæmt undanfarin ár en nú er bara búið að segja stopp. Hvernig væri að loka sundlauginni fyrst það á hugsa svona illa um hana?!“

Sjá einnig:

Ámundi er hættur að fara í heita pottinn út af þessum ósið ungra manna – „Það verður að taka á þessu“

Segir hann að fólk sem heimsæki Laugardalinn oft í viku sé nánast hætt að hafa lyst á að fara í Laugardalslaugina með krakkana. Það sé ömurlegt því að það taki rúman hálftíma að keyra seinnipartinn í önnur hverfi til að komast í sund.

„Mín tillaga? Halda lauginni í lágmarksstandi OG henda upp 2-3 heitum pottum og einum köldum - nóg er plássið. Kostar nokkrar milljónir en ekki margar,“ segir hann að lokum.

Sami fljótandi kúkurinn

Í athugasemdum taka margir undir gagnrýni Ásmundar, bæði hvað varðar aðstöðu og óþrifnað. Meðal annars er nefnt að sjópotturinn hafi verið það besta við laugina en það sé búið að loka honum.

„Við Íslendingar myndum eflaust halda áfram að mæta þótt við gætum borið kennsl á sama fljótandi kúkinn þarna dag eftir dag,“ segir einn.

Skoða málið

Á meðal þeirra sem bregðast við eru borgarfulltrúar Viðreisnar. Oddvitinn Björg Magnúsdóttir segir að málið verði skoðað.

„Ég hef sjálfur verið fastagestur í Laugardalslauginni í gegnum árin og þykir mjög vænt um hana. Ég ætla að koma ábendingunum á framfæri og kanna stöðuna. Heyri svo í þér!“ segir Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab