Viðræður ganga illa og Liverpool gæti reynt aftur

Viðræður Crystal Palace við Ismaila Sarr ganga illa og gæti Liverpool aftur reynt að kaupa hann. Football Insider segir frá.

Liverpool var til í að greiða 50 milljónir punda fyrir hinn 28 ára gamla Sarr síðasta sumar og kantmaðurinn vildi fara á Anfield. Palace tók þó ekki í mál að selja. 

Lundúnafélagið vill fá Senegalann til að skrifa undir nýjan samning, en sá sem nú er í gildi rennur út eftir um tvö og hálft ár. Hann vill þó ekki gera neitt slíkt. Liðið er á botni ensku úrvalsdeildarinnar og var að skipta um stjóra en Thomas Frank er tekinn við af Pierre Sage. 

Sarr vill því sjá hvernig málin þróast hjá félagi sínu. Ef hann fer þykir ólíklegt að það verði í janúar en skipti næsta sumar koma frekar til greina.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab