Framlengir við spænska stórliðið

Arda Guler hefur framlengt samning sinn við Real Madrid.

Arda Guler hefur framlengt samning sinn við Real Madrid. AFP/Jose Jordan

Arda Güler hefur framlengt samning sinn við Real Madrid til ársins 2032. Þetta staðfesti spænska félagið í dag en óvissa hefur verið um framtíð tyrkneska knattspyrnumannsins.

Güler, sem er 21 árs, gekk til liðs við Real Madrid frá Fenerbahçe sumarið 2023. Hann hefur leikið 126 leiki fyrir félagið og unnið fimm titla, þar á meðal Meistaradeild Evrópu, spænsku deildina og heimsmeistarakeppni félagsliða.

Samkvæmt spænska blaðinu Marca felur nýi samningurinn í sér umtalsverða launahækkun. Áhugi hefur verið á Güler frá öðrum stórliðum, ekki síst í ensku úrvalsdeildinni en Real Madrid hefur nú tryggt framtíð hans hjá félaginu.

Hann hefur leikið 38 landsleiki fyrir Tyrkland og var valinn besti ungi leikmaður Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.

Arda Guler með boltann í leik Tyrkja og Frakka um helgina. AFP/Romain Perrocheau

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab