Svona lítur GTA VI út
Auglýsingar fyrir nýjasta GTA leikinn eru áberandi í stórborgum víða um heim. Hér má sjá auglýsingaskilti í Melbourne í Ástralíu, en tölvuleikjaspilarar þar í landi eru meðal þeirra fyrstu sem fá að stíga inn í borgina Vice city í leiknum nýja. AFP/William West
Fyrstu tölvuleikjaspilararnir eru nú farnir að spila nýjasta tölvuleikinn „Grand Theft Auto“-seríunni, GTA VI, en þeir sem eru staðsettir í Nýja-Sjálandi, eða hafa skráð staðsetningu sína þar fengu aðgang að leiknum klukkan 11 að íslenskum tíma.
Nokkrir spilaranna eru með beint streymi frá spilun sinni og eru jafnvel yfir 100 þúsund manns að fylgjast með því sem fyrir augu ber. Hægt er að sjá tvö dæmi um beint streymi tölvuleikjaspilara hér að neðan.
GTA VI verður fáanlegur á PlayStation 5 og Xbox Series-leikjatölvum á miðnætti í kvöld að staðartíma á hverju svæði þar sem hann er í boði.
Greint var frá því á mbl.is fyrr í þessum mánuði að það gæti orðið óvenjulega mikið um „flensu“ á vinnustöðum landsins á morgun, fimmtudaginn 19. nóvember, ef marka mætti það sem heyrðist meðal tölvuleikjaáhugamanna.
Hér má sjá Youtube notandann TCC spila GTA VI:
Og hér er það notandinn Typical Gamer sem skoðar Vice city borgina sem leikurinn gerist í:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗