Sigurður Jóhannesson skrifar: Leikskólinn við Austurvöll – 63 börn – Sex deildir – Einn sandkassi – Enginn má vera sammála.
Við Austurvöll í Reykjavík stendur merkilegur leikskóli. Hann er reyndar kallaður Alþingi, en starfsemin minnir stundum meira á leikskóla þar sem börnin hafa aldrei almennilega lært að leika sér saman.
Þarna eru 63 börn í sex deildum. Deildirnar heita Samfylking, Sjálfstæði, Viðreisn, Flokkur fólksins, Miðflokkur og Framsókn.
Öll börnin telja sig einstaklega hæfileikarík og flest eru sannfærð um að án þeirra myndi leikskólinn einfaldlega leggja upp laupana.
Á leikskólanum gildir aðeins ein óskráð regla:
Það skiptir ekki máli hvort hugmyndin er góð eða slæm. Það skiptir máli úr hvaða deild hún kemur.
Sex deildir og einn sandkassi
Þrjár deildir hafa tekið að sér að stjórna leikskólanum. Þær fá að ákveða hvað á að gera, hvaða leikföng á að kaupa og hversu mikið foreldrar þurfa að borga.
Hinar þrjár hafa tekið að sér það mikilvæga hlutverk að útskýra daglega hvers vegna allt sem hinar deildirnar gera sé rangt.
Þetta fyrirkomulag gengur ágætlega, svo lengi sem enginn ætlast til þess að allir vinni saman eða vinni eitthvað yfir höfuð.
Einn morguninn kemur barn með þá hugmynd að laga bilaða rólu á leikvellinum.
„Frábært!“ segja öll börnin úr sömu deild.
„HNEYKSLI!“ hrópa börnin af hinum deildunum.
„Hvers vegna var ekki haft samráð við okkur?“
„Þetta er árás á lýðræðið!“
„Við bentum á þetta fyrir þremur árum!“
„Þetta er ekki rétta leiðin til að laga rólu!“
Eftir fjögurra vikna rifrildi er ákveðið að stofna starfshóp um framtíðarsýn biluðu rólunnar.
Á meðan situr barnið sem ætlaði að nota róluna á skólalóðinni og bíður og bíður…
Þegar börnin skipta um deildir
Eitt af því merkilegasta við leikskólann er að skoðanir barnanna virðast stundum ráðast af því hvorum megin sandkassans þau sitja eða í hvaða horni þau eru.
Þegar þau eru í stjórnarmegin er nauðsynlegt að hækka gjöld til að tryggja framtíð leikskólans.
Þegar þau eru komin hinum megin er nákvæmlega sama gjaldahækkun orðin að grimmilegri atlögu að öllum deildum leikskólans.
Barn sem áður vildi spara vill nú eyða.
Barn sem áður vildi eyða vill nú spara.
Og barn sem hafði hátt og snjallt kallað eftir breytingum er skyndilega orðið mjög upptekið af því að útskýra hvers vegna breytingar séu flóknar og taki tíma.
Kennarinn spyr:
„En varst það ekki þú sem lagðir þetta til í fyrra?“
„Jú, en þá voru HINIR við stjórnvölinn!“
Mikil starfsemi – en hvað með árangurinn?
Í lok skólaársins 2025–2026 var ákveðið að telja afraksturinn.
Börnin höfðu lagt fram 188 frumvörp, og 105 þeirra urðu að leikskólalögum.
Þau lögðu einnig fram 95 leikskólatillögur. Af þeim voru 22 samþykktar.
Þau höfðu spurt 399 formlegra spurninga og fengið svör við 290.
Og haldið 500 fundi í sérhópum sem nánast engar ákvarðanir komu úr.
Þetta var því sannarlega ekki verkefnalaust skólaár.
En leikskólastjórinn hafði áhyggjur af því að sum börnin væru farin að rugla saman því að vera upptekin og því að skila árangri.
„Við höfum setið á hundruðum funda!“ sagði eitt barnið.
„Við höfum talað í þúsundir mínútna!“ sagði annað.
„Ég hef gagnrýnt nánast allt sem hinir hafa gert!“ bætti það þriðja við, greinilega stolt af framlagi sínu.
„En hvað hafið þið gert saman?“ spurði kennarinn.
Það varð vandræðaleg þögn.
Svo stakk eitt barnið upp á því að stofna nefnd til að svara spurningunni.
Stóri foreldrafundurinn
Einn daginn mættu foreldrarnir á fund.
Þeir voru orðnir þreyttir á stöðugu rifrildi, brotnum loforðum og því að borga sífellt meira fyrir leikskóla sem virtist aldrei geta ákveðið hvernig ætti að reka sjálfan sig.
„Við viljum bara að þið vinnið saman og reynið að gera eitthvað gott fyrir okkur hin,“ sagði einn faðirinn. „Við viljum borga minna í leikskólann,“ sagði ein móðirin.
„Það er akkúrat það sem við erum að gera!“ svaraði barn stjórnarmegin.
„NEI, ÞIÐ ERUÐ AÐ EYÐILEGGJA ALLT!“ öskraði barn úr stjórnarandstöðunni.
„Þið gerðuð alveg það sama þegar þið réðuð!“ kom á móti.
„ÞETTA ER YKKUR AÐ KENNA!“
„NEI, YKKUR!“
Foreldrarnir horfðu hver á annan.
Á venjulegum leikskóla hefði kennarinn nú gripið inn í og beðið börnin um að setjast í hring, hlusta hvert á annað og sýna virðingu.
En á þessum leikskóla var þetta kallað þingleg leikskólaumræða.
Sérstakt hegðunarvandamál
Það sem vakti mesta athygli foreldra var þó ekki rifrildið sjálft.
Það var að börnin virtust hafa lært að samkomulag gæti verið hættulegt eigin stöðu í sandkassanum.
Ef hugmynd frá annarri deild væri samþykkt gæti sú deild fengið hrósið.
Og þá væri jafnvel hætta á að foreldrarnir kysu hana aftur næst.
Þess vegna væri stundum skynsamlegra að rífast nógu lengi til að allir gleymdu hver hafði upphaflega stungið upp á hugmyndinni.
Þetta þótti merkileg uppgötvun í uppeldisfræðum sem engin lærði.
Á öðrum leikskólum eru börn hvött til samstarfs.
Við Austurvöll virðist stundum vera verðlaunað fyrir að standa nógu fast á sínu til að ekkert verði úr neinu.
Skólaskipti á fjögurra ára fresti
Á fjögurra ára fresti fá foreldrarnir svo að ákveða hverjir fá að vera áfram í leikskólanum.
Þá gerist dálítið undarlegt.
Börnin verða allt í einu einstaklega kurteis og samstarfsfús.
Þau hætta tímabundið að rífast, brosa fallega, heimsækja foreldra og lofa að nú verði allt öðruvísi.
Þau segjast ætla að hlusta, sýna ábyrgð, vinna saman og setja hagsmuni allra framar eigin hagsmunum.
Sum lofa meira að segja að laga róluna.
Svo eru kosningarnar búnar.
Börnin mæta aftur í leikskólann.
Og áður en morgunmaturinn er búinn heyrist:
„ÞÚ FÆRÐ EKKI AÐ RÁÐA!“
„ÞETTA ER MÍN SKÓFLA!“
„ÞETTA VAR MÍN HUGMYND!“
„ÉG ÆTLA AÐ SEGJA FRÁ!“
Og allt er komið í sama farið.
Hver á eiginlega að vera fullorðinn?
Það er auðvitað ekki svo að öll börnin séu eins. Sum vinna mikið, leggja sig fram og reyna í alvöru að bæta leikskólann. En það er erfitt að heyra í þeim þegar hin eru upptekin við að öskra yfir sandkassann.
Kannski er kominn tími til að breyta því hvernig við metum starfsemina.
Ekki eftir því hver talar lengst.
Ekki eftir því hver getur móðgað hina deildina með eftirminnilegustu setningunni.
Ekki eftir fjölda funda, nefnda, yfirlýsinga eða sjónvarpsviðtala.
Heldur eftir því hvað var gert, hvað tókst og hvað breyttist til hins betra.
Því tilgangurinn með leikskólanum er ekki að tryggja að sömu börnin fái að leika þar endalaust.
Tilgangurinn er að þjóna samfélaginu sem heldur honum uppi.
Kannski er stærsti vandi leikskólans við Austurvöll ekki að börnin séu óþekk. Heldur að þau séu farin að líta á sandkassann sem sína eign og foreldrana sem mjólkurkú sem eigi bara að borga reikningana endalaust.
Og það undarlegasta af öllu er kannski það að á öllum öðrum leikskólum landsins myndu foreldrarnir kalla á fund með leikskólastjóranum ef börnin hegðuðu sér svona.
En við Austurvöll erum við búin að horfa upp á sama leikritið svo lengi að venjulegir foreldrar eru hættir að skipta sér af þessu rugli, eru búin að gefast upp og skipta bara á Netflix.
Höfundur er framkvæmdastjóri
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗