Stærstu vendingarnar í deilu Beckham-hjónanna við son sinn hingað til? - Þetta gerði Victoria á dögunum
433
Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 12:30
Peltz og Beckham fjölskyldan þegar allir voru vinir.
Victoria Beckham er sögð hafa stigið stórt skref í átt að sáttum við son sinn Brooklyn, sem hefur átt í hörðum deilum við foreldra sína.
Victoria hefur gengið frá pappírum sem gera Brooklyn kleift að eignast vörumerkjaréttindin að eigin nafni í desember. Hún skráði nafnið árið 2016, þegar hann var enn undir lögaldri, til að koma í veg fyrir að aðrir gætu hagnast á því.
Það er einnig greint frá því að Victoria sé að undirbúa að hinir synir hennar, Romeo og Cruz, fái réttindin að sínum nöfnum sömuleiðis.
Brooklyn, sem er 27 ára, sakaði foreldra sína í janúar um að hafa reynt að múta sér til að afsala sér réttindum að nafni sínu áður en hann gekk í hjónaband með Nicolu Peltz árið 2022. Hann hefur einnig sakað þau um að reyna að eyðileggja samband þeirra hjóna.
Beckham-hjónin hafa alfarið hafnað ásökununum ef marka má heimildamenn breskra blaða. Sömu heimildamenn segja að David og Victoria dreymi um að sættast við Brooklyn fyrir jól.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗