Landsliðskonan á leið til Bandaríkjanna

Rebekka Rut Steingrímsdóttir.

Rebekka Rut Steingrímsdóttir. Ljósmynd/KKÍ

Landsliðskonan unga Rebekka Rut Steingrímsdóttir hefur skrifað undir samning við bandaríska háskólaliðið San José State University (SJSU) og mun leika með liðinu í háskólaboltanum vestanhafs á næsta tímabili.

Rebekka er 18 ára bakvörður og uppalin hjá KR. Hún hefur farið á kostum með uppeldisfélaginu í vetur.

Í fyrstu sex leikjum tímabilsins hefur hún skilað 17,5 stigum, fimm fráköstum og fimm stoðsendingum að meðaltali í leik og verið með 18,8 framlagsstig.

Rebekka hefur einnig fest sig í sessi í íslenska A-landsliðinu að undanförnu og tók þátt í nýafstöðnum landsleikjaglugga í undankeppni EM 2029.

Hún átti meðal annars góðan leik í stórsigri Íslands á Aserbaísjan á Ásvöllum í gærkvöldi, þar sem hún skoraði tíu stig og gaf sex stoðsendingar.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab