Þetta voru bestu leikmenn Íslands í Þjóðadeildinni

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 12:00

Andri Lucas Gudjohnsen og leikmenn fagna. Mynd DV/KSJ

Andri Lucas Guðjohnsen var besti leikmaður íslenska landsliðs í Þjóðadeildinni í haust samkvæmt einkunnagjöf 433.is.

Ísland vann riðil sinn í C-deildinni með 14 stig eftir fjóra sigra, tvö gegn Búlgaríu og tvo gegn Lúxemborg, og tvö jafntefli gegn Eistlandi. Liðið tryggði sér þar með sæti í B-deild.

Andri Lucas var sjóðheitur í keppninni og skoraði sex mörk, þar af þrennu í 5-0 sigri gegn Búlgaríu. Hann hefur einnig verið í miklu stuði með Blackburn í ensku B-deildinni undanfarið.

Andri Lucas fékk 7,2 í meðaleinkunn hjá 433.is í leikjunum sex og var þar með efstur allra.

Þar á eftir komu Orri Steinn Óskarsson og Hákon Rafn Valdimarsson, báðir með 6,7 í meðaleinkunn. Þeir fengu einnig einkunn í öllum sex leikjunum.

Við útreikninginn voru teknar saman einkunnir úr öllum leikjum Íslands. Aðeins leikmenn sem fengu einkunn í að minnsta kosti tveimur leikjum komu til greina við samantektina.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab