Ekkert núll í kortunum samkvæmt mati Seðlabankans
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið í september. Þá var stefnt að því að komast yfir núllið. Seðlabankinn er ekki jafn bjartsýnn núna. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Seðlabanki Íslands spáir halla á ríkissjóði þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi boðað hallalaus fjárlög. Stóra núllið hjá ríkisstjórninni virðist því ekki vera í kortunum samkvæmt mati bankans.
Í ritinu Peningamálum gerir bankinn ráð fyrir að hallinn nemi 0,3% af landsframleiðslu, en bankinn spáir að landsframleiðsla verði 5.520 milljarðar á næsta ári. Nemur hallinn því 16,5 milljörðum.
Í fjárlagafrumvarpinu er hins vegar reiknað með afgangi sem nemur 0,1% af landsframleiðslu. Munurinn er því 0,4 prósentur af landsframleiðslu eða um 22 milljarðar.
„Afkoma ríkissjóðs er því talin verða heldur lakari en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu,“ segir í ritinu og vísað er til þess að frávikið megi að mestu rekja til óhagfelldrar þjóðhagsforsendna í grunnspá nýrra Peningamála. Þá vegi einnig inn í aðgerðir í tengslum við aðkomu ríkisins að framlengingu kjarasamninga.
Samkvæmt spá bankans stefnir þannig í halla í stað afgangsins sem ríkisstjórnin gerir ráð fyrir.
Ekki er gert ráð fyrir mikilli breytingu á afkomu sveitarfélaga á næsta ári samkvæmt Seðlabankanum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗