Handtekinn erlendis og í haldi í rúma níu mánuði
Maður sem ákærður er fyrir að hafa staðið að tveimur kókaínsendingum til Íslands hefur setið óslitið í gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn erlendis 4. febrúar. Hann var framseldur hingað til lands 13. mars. Hann neitar sök.
Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maðurinn skuli sæta gæsluvarðhaldi til 8. desember.
Úrskurður Landsréttar féll 13. nóvember og var birtur í dag.
Ellefu handteknir á Íslandi
Handtakan var liður í rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi, stórfelldum fíkniefnainnflutningi og peningaþvætti. Lögreglu- og ákæruyfirvöld á Íslandi, í Litháen og á Spáni unnu saman að rannsókninni með stuðningi Europol og Eurojust.
Ellefu voru handteknir á Íslandi, sex í Litháen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Lögreglan á Suðurnesjum greindi frá aðgerðunum 10. febrúar.
Telur hann hafa afhent fíkniefnin
Í greinargerð héraðssaksóknara, sem rakin er í úrskurði héraðsdóms, segir að rannsóknargögn og framburður vitna bendi til þess að maðurinn hafi ekið fíkniefnaflytjendunum á flugvöll erlendis þegar þeir voru á leið til Íslands.
Að mati héraðssaksóknara benda gögnin einnig til þess að hann hafi afhent þeim fíkniefnin, skipulagt ferðir þeirra og gefið þeim fyrirmæli.
Alls voru rúmlega fimm kíló af kókaíni flutt til landsins í ferðunum tveimur. Flytjendurnir hlutu dóma hér á landi fyrir þátt sinn í innflutningnum.
Héraðssaksóknari gaf út ákæru á hendur manninum 27. júlí fyrir að hafa í tvígang staðið að skipulagningu og framkvæmd fíkniefnainnflutnings. Hann neitaði sök við þingfestingu málsins 24. ágúst. Aðalmeðferð var hafin þegar úrskurðurinn féll og framhald hennar var fyrirhugað.
Fór fram á farbann til vara
Maðurinn kærði úrskurð héraðsdóms frá 11. nóvember og krafðist þess að hann yrði felldur úr gildi. Til vara fór hann fram á að sæta farbanni. Landsréttur staðfesti úrskurðinn með vísan til forsendna héraðsdóms.
Héraðsdómur taldi rökstuddan grun um brot sem gæti varðað fangelsisrefsingu. Maðurinn væri erlendur ríkisborgari með lítil sem engin tengsl við Ísland.
Dómurinn taldi hættu á að hann reyndi að fara úr landi, leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar ef hann gengi laus. Vægari úrræði en gæsluvarðhald myndu að mati dómsins ekki tryggja nærveru hans.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/63/12/1631299.jpg)