Breyta staðsetningunni til að geta spilað GTA VI

Leikurinn verður aðgengilegur á miðnætti.

Leikurinn verður aðgengilegur á miðnætti. AFP/Philip Fong

Fyrstu spilarar nýjasta leiksins í „Grand Theft Auto“-seríunni geta nú tengst á Nýja-Sjálandi, sem markar upphafið að alþjóðlegri útgáfu leiksins. En hann verður aðgengilegur á miðnætti hér á Íslandi, þann 19. nóvember. 

GTA VI verður fáanlegur á PlayStation 5 og Xbox Series-leikjatölvum á miðnætti í kvöld að staðartíma á hverju svæði þar sem hann er í boði.

Spilarar á Nýja-Sjálandi gátu því tengst á miðnætti þar í landi, eða klukkan 11:00 GMT.

Slík hefur eftirvæntingin eftir leiknum verið að spilarar víða annars staðar í heiminum hafa gripið til þess ráðs að breyta staðsetningu sinni til að verða meðal þeirra fyrstu til að stíga inn í nýju Vice City.

Þeir sem keyptu leikinn í forsölu rafrænt gátu sótt hann á tölvur sínar þann 10. nóvember síðastliðinn og sló umferð netfyrirtækisins Nova öll met á þeim tíma.

Greint var frá því á mbl.is fyrr í þessum mánuði að það gæti orðið óvenjulega mikið um „flensu“ á vinnustöðum landsins á morgun, fimmtudaginn 19. nóvember, ef marka mætti það sem heyrðist meðal tölvuleikjaáhugamanna.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab