Skórnir á hilluna hjá Spánverjanum knáa

Juan Mata í búningi Manchester United.

Juan Mata í búningi Manchester United. AFP/Justin Tallis

Spænski knattspyrnumaðurinn Juan Mata hefur tilkynnt að hann sé hættur 38 ára að aldri.

Mata lék 41 landsleik fyrir Spán og var í leikmannahópnum sem varð heimsmeistari árið 2010. Tveimur árum síðar varð hann Evrópumeistari með liðinu og skoraði eitt marka Spánar í 4:0-sigrinum á Ítalíu í úrslitaleiknum.

Mata lék með yngri liðum Real Madrid áður en hann gekk til liðs við Valencia árið 2007. Hann fór til Chelsea í ágúst 2011 og vann þar Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina og enska bikarinn.

Í janúar 2014 gekk hann til liðs við Manchester United og vann með félaginu Evrópudeildina, enska bikarinn og deildabikarinn áður en hann yfirgaf það árið 2022.

Eftir dvölina hjá United lék Mata með Galatasaray í Tyrklandi og Vissel Kobe í Japan. Síðan lék hann með áströlsku liðunum Western Sydney Wanderers og Melbourne Victory.

„Fótboltinn mun aldrei hverfa úr lífi mínu. Það eru svo margar leiðir til að halda áfram að elska leikinn og nýta hann sem tæki til að þroskast. Ég hætti kannski að spila, en ég mun aldrei hætta að vera fótboltamaður,“ sagði Mata.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab