Losun fer úr 132 tonnum niður í núll
Starfsfólk Eimskips í Sundahöfn stillti sér upp þegar tekið var á móti nýja rafknúna gámalyftaranum í síðustu viku. Ljósmynd/Eimskip
Eimskip hefur tekið í notkun sinn fyrsta rafknúna gámalyftara. Á vef skipafélagsins er tækið sagt það fyrsta sinnar tegundar sem afhent er á Íslandi og marki stóran áfanga í áframhaldandi þróun og endurnýjun tækjaflota Eimskips.
„Nýi rafknúni gámalyftarinn er mikilvægt skref í rafvæðingu starfsemi Eimskips og styður við markmið félagsins um að draga úr losun og ná kolefnishlutleysi árið 2040,“ segir þar jafnframt.
Fram kemur að Kraftvélar, umboðsaðili Kalmars á Íslandi, hafi afhent gámalyftarann í Sundahöfn í síðustu viku.
Agla Huld Þórarinsdóttir, sjálfbærnistjóri Eimskips, klippir á rauða borðann við afhendinguna á nýja lyftaranum. Ljósmynd/Eimskip
„Samkvæmt áætlunum Kalmar losar hefðbundinn dísilknúinn gámalyftari um 132 tonn af CO₂ á ári, en rafknúni gámalyftarinn veldur engri beinni losun CO₂ við notkun.“
Í færslu skipafélagasins segir að Guðmundur Ágúst Aðalsteinsson, forstöðumaður hafnarsvæðis Eimskips í Sundahöfn, hafi tekið við gámalyftaranum.
Þá hafi Agla Huld Þórarinsdóttir, sjálfbærnistjóri Eimskips, klippt á rauða borðann í tilefni afhendingarinnar.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
