Gagnrýnir refsingu markvarðarins eftir slysið skelfilega - „Hvort er verið að refsa fyrir brotið sjálft eða afleiðingar þess?“

Helgi Fannar Sigurðsson

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 11:30

Jesus Owono. Mynd: Andorra

Gerard Pique, goðsögn Barcelona og spænska landsliðsins og nú eigandi FC Andorra, telur að markvörður liðsins, Jesus Owono, hafi fengið ósanngjarna refsingu eftir að árekstur hans við Jesus de Miguel, framherja Tenerife, leiddi til andláts þess síðarnefnda.

Owono fékk rautt spjald fyrir áreksturinn í leik liðanna 2. nóvember. De Miguel lést daginn eftir, þrítugur að aldri, en Owono var í kjölfarið úrskurðaður í tólf leikja bann, sem er hámarksrefsing.

„Ég tel að með því að gefa Jesus hámarksrefsingu sé verið að setja hann í stöðu sem hann á ekki skilið. Hann ber ekki sök á því hvernig fór,“ sagði Pique og benti á að um slys hafi verið að ræða.

Pique vakti athygli á öðru atviki þar sem leikmaður fékk þriggja leikja bann eftir að hafa sparkað í höfuð mótherja sem missti meðvitund en lifði af.

„Hvort er verið að refsa fyrir brotið sjálft eða afleiðingar þess?“ spurði Pique.

Hann segir Owono eiga afar erfitt eftir atvikið og ólíklegt að hann verði tilbúinn að spila strax að banninu loknu.

„Engin refsing mun færa De Miguel aftur til okkar.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab