Sér mikla möguleika í kvennalandsliðinu
Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn afreksstjóri Handknattleikssambands Íslands og fær það hlutverk að hafa yfirumsjón með afreksstarfi sambandsins, allt frá yngri landsliðum upp í A-landslið.
„Við þurfum að hækka rána og tala af meiri metnaði um kvennaboltann. Að hvetja stelpur til að sjá hvað þær geta komist langt,“ sagði Þórir í ítarlegu viðtali við RÚV.
Hann mun meðal annars veita landsliðsþjálfurunum ráðgjöf og stuðning en leggur áherslu á að verkefnið sé sameiginlegt átak HSÍ, félaganna, leikmanna og þjálfara.
Þórir telur landsliðin vera á ólíkum stað. Karlalandsliðið hafi burði til að berjast um verðlaun á stórmótum en kvennalandsliðið þurfi að taka næsta skref og stefna á að komast í hóp tíu bestu þjóða heims.
Þarf fleiri atvinumenn
Hann telur nauðsynlegt að koma fleiri íslenskum leikmönnum kvennamegin í atvinnumennsku erlendis. Nú séu átta til níu landsliðskonur í atvinnumennsku en þeim þurfi að fjölga.
Hann er bjartsýnn á framtíð kvennalandsliðsins og telur núverandi leikmannahóp geta haldið áfram að þróast í mörg ár.
„Ef við höldum vel á spilunum er þetta hópur sem á að geta spilað með íslenska landsliðinu næstu tíu til fjórtán árin, að minnsta kosti,“ segir hann.
Þórir nefnir þrjá lykilþætti til að íslenskur handbolti taki næsta skref: betri markmannsþjálfun, aukna áherslu á styrktarþjálfun og markvissa andlega þjálfun hjá yngri landsliðunum.
Hann verður með kvennalandsliðinu að stórum hluta á EM í desember og fer einnig með karlalandsliðinu á HM í janúar. Þórir segir þó að uppbyggingin taki tíma og að ekki sé nóg að einn maður komi til starfa.
„Ef við ætlum að lyfta landsliðunum þurfum við líka að hjálpa félagsliðunum til að lyfta sér. Öll fjölskyldan verður að vera um borð ef við ætlum að lyfta þessu upp í verðlaunasæti karlamegin og koma kvennaliðinu í hóp tíu bestu. Þetta gerist ekki á einni nóttu,“ sagði hann meðal annars í viðtalinu.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗