Arnór Ingi og fjölskylda opna Laut í kvöld
Að rekstri Lautar stendur Arnór Ingi ásamt bróður sínum, Sigurði Birni, og foreldrum þeirra, Laufeyju og Bjarka. Hann og eiginkona hans, Lina Marija Balčiūnaitė, reka jafnframt veitingastaðinn Skóg í Vilníus í Litáen, sem hefur hlotið meðmæli Michelin. Samsett mynd/Aðsend
Veitingastaðurinn Laut í Norræna húsinu tekur á móti fyrstu kvöldverðargestunum í kvöld, miðvikudaginn 18. nóvember. Tveir smakkseðlar verða í boði þar sem íslenskt hráefni og norræn matargerð verða í fyrirrúmi.
Eins og matarvefurinn hefur áður greint frá opnaði Laut fyrir hádegisgesti 6. nóvember. Nú bætist kvöldverðurinn við og Arnór Ingi Bjarkason, yfirkokkur og einn eigenda staðarins, hefur skýra sýn á framhaldið.
„Á kvöldin á Laut að vera ein besta matarupplifun á Íslandi: tveir smakkseðlar úr besta hráefni landsins. Annar fyrir forvitna, hinn fyrir þá sem vilja alla upplifunina,“ segir hann.
Sjávarfangið vekur tilhlökkun
Arnór Ingi er jafnframt eigandi og yfirkokkur Skógar í Vilníus í Litáen, sem hefur hlotið meðmæli Michelin. Eftir undanfarin ár þar segist hann sérstaklega spenntur fyrir því að vinna með íslenskt sjávarfang.
Á kvöldmatseðli nóvembermánaðar má meðal annars finna þorsk með brúnuðu smjöri og þangskeggi, skötusel og innfjarðarrækjur ásamt lambi með krækiberjum.
Beltisþari í karamellunni
Þegar talið berst að uppáhaldsréttinum nefnir Arnór Ingi karamellu úr beltisþara sem borin verður fram í lok máltíðarinnar. Á Skógi gerir hann sambærilega karamellu úr sveppum.
Metnaðurinn fyrir hönd Lautar er mikill en hann segir upplifun gestanna ráða mestu.
„En það sem skiptir mestu máli er að gestir fari frá okkur glaðir og saddir. Það er númer eitt, tvö og þrjú.“
Kvöldverður verður í boði frá miðvikudegi til laugardags, klukkan 17.30 til 23.00.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗