Tekst vonandi án þess að valda enn meiri skaða

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundinum í morgun. Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Vignisdóttir, aðalhagfræðingur bankans, sjást nær á myndinni. mbl.is/Eyþór

Þó að áhrif af aðhaldi peningastefnu Seðlabankans séu að einhverju leyti farin að bíta á raunhagkerfinu er bankinn í mjög þröngri stöðu varðandi að slaka á taumhaldinu og þar með gefa eftir og lækka stýrivexti. Há verðbólga og verðbólguvæntingar takmarka til muna svigrúm bankans til að bregðast við og áfram eru áhyggjur af því að svokölluð annarrar umferðar áhrif af verðhækkunum skili sér í verðlagið og valdi þannig auknum verðbólguþrýstingi.

Þetta var meðal þess sem kom fram í máli forystumanna Seðlabankans á fundi peningastefnunefndar í morgun vegna ákvörðunar nefndarinnar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%.

Svigrúm bankans takmarkað

Undanfarið hafa fréttir borist af versnandi stöðu hagkerfisins og hefur það sérstaklega komið fram á húsnæðismarkaði þar sem raunlækkun hefur verið bæði á húsnæðisverði og leiguverði og mikið er um óseldar íbúðir á meðan staða verktaka þyngist.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði á fundinum að erfitt væri að segja nákvæmlega hvenær aðhaldið væri of mikið. Benti hann á að verðbólga væri enn 5,9% og meðan verðbólga væri svo há takmarkaði það svigrúm bankans, en verðbólgumarkmið hans er 2,5%.

Áhyggjur af annarrar gráðu áhrifum

Sagðist hann yfirleitt hafa áhyggjur af annarrar gráðu áhrifum, meðal annars í gegnum vinnumarkaðinn, en þær áhyggjur hefðu minnkað núna þar sem kjarasamningar héldust. Þá hefðu verðbólguvæntingar lækkað eftir að hafa hækkað þegar átök hófust við Persaflóa fyrr á árinu og væru þær nú komnar undir stöðuna fyrir stríðið. Hins vegar væri verðbólgan enn há og því væru áhyggjur uppi um árangur við að koma henni niður.

„Hagkerfið er greinilega að gefa töluvert eftir“

Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sagði ljóst að þótt jákvæð teikn væru á lofti, meðal annars með því að kjarasamningar hefðu haldið, þá væru landsmenn ekki enn komnir fyrir horn.

Tók hann undir með Ásgeiri og sagði vaxtahækkun fyrr á árinu, sem hann kallaði fyrirbyggjandi, hafa heppnast vel. Nú væri hins vegar spurning um mat á því hvað ætti að ganga langt til að ná verðbólgu niður og að passa upp á raunhagkerfið til að koma í veg fyrir mikinn skaða þar.

„Ég hef nokkrar áhyggjur af því hvernig staðan er í raunhagkerfinu. Það sem við sjáum gerast á vinnumarkaði og hagkerfið er greinilega að gefa töluvert eftir. En svigrúm okkar til að létta á þessu er mjög takmarkað í ljósi þess hver verðbólgan er og hvað verðbólguvæntingar eru háar. En vonandi tekst að ná þessu án þess að valda enn meiri skaða,“ sagði Þórarinn.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab