Beitti exi á bandaríska herflugvél

Flugvélin, líkt og þessi, var af gerðinni C-130 Hercules.

Flugvélin, líkt og þessi, var af gerðinni C-130 Hercules. AFP

Bandarísk yfirvöld hafa ákært írskan mann fyrir að hafa unnið skemmdarverk á flugvél Bandaríkjahers á írskum flugvelli. 

Þetta kemur fram í fréttaflutningi BBC.

Þar kemur fram að maðurinn á að hafa notað meðal annars exi til að skemma vélina. 

Skemmdir upp á sjö og hálfan milljarð

Flugvélin er af gerðinni C-130 Hercules og er metin á 60 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæplega sjö og hálfs milljarðs íslenskra króna. 

Bandarískir saksóknarar hafa ákært manninn fyrir skemmdarverk á eign ríkisins. Hámarksrefsing við því er tíu ára fangelsi.

Í gögnum sem bandarískir saksóknarar gerðu opinber í gær héldu fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar því fram að verknaðurinn hefði stefnt þjóðaröryggi Bandaríkjanna í hættu.

„Samkvæmt ákærunni framdi maðurinn vísvitandi og skipulagða árás á bandaríska herflugvél, olli tjóni upp á tugi milljóna dala og stefndi mikilvægum hernaðaraðgerðum í hættu,“ sögðu saksóknarar í dómsskjali.

„Þetta var ekki skemmdarverk framið í hugsunarleysi,“ sagði James Barnacle yngri, aðstoðarforstjóri FBI, og útskýrði að maðurinn hefði „varið mánuðum í að kynna sér flugvélina, afla sér verkfæra og efna og búa sig undir að valda sem mestri eyðileggingu“.

Staðinn að verki

Að sögn yfirvalda komst hann inn í flugvélina með því að brjóta læsingarbúnað, notaði síðan ólar til að loka dyrunum og byrgði fyrir gluggana.

„Maðurinn olli síðan alvarlegum skemmdum á innviðum flugvélarinnar, meðal annars með því að skera á rafmagnsvíraknippi og vökvalagnir í flugvélinni, klemma saman leiðslu fyrir súrefni og eyðileggja hvern einasta mæli í stjórnklefanum,“ segir í ákærunni.

Hann notaði einnig gallín, efni sem getur tært ál og stál, legukúlur sem hann hellti í eldsneytistankinn og exi sem hann notaði til að gata ytra byrði flugvélarinnar.

Starfsmenn flugvallarins stóðu hann að verki og náðist meðal annars myndband þar sem hann stóð ofan á flugvélinni. 

Hver einasti mælir í stjórnklefa flugvélarinnar var eyðilagður.

Hver einasti mælir í stjórnklefa flugvélarinnar var eyðilagður. AFP

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab