Yfir 100.000 manns skrifa undir áskorun um að taka „klámþættina“ úr sýningu á Netflix

Fókus

Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 11:30

Þættirnir hafa fengið talsvert umtal. Mynd/Netflix

Nýir sjónvarpsþættir á Netflix hafa vakið hörð viðbrögð meðal áhorfenda og trúarhópa, sem saka streymisveituna um að ganga allt of langt í kynferðislegri framsetningu og gera lítið úr kristinni trú.

Sjá einnig: Allt vitlaust vegna nýrra Netflix-þátta – „Þetta er nánast klám“

Kvartanir vegna þáttanna snúast um að í þeim megi meðal annars sjá: „kristnar skólastúlkur, myrk vígsluathöfn, djöfullinn og spádómlegar sýnir“.

Hrundið hefur verið af stað mótmælum á trúarlegum forsendum gegn þáttaröðinni, sem segir frá hópi kaþólskra skólastúlkna sem halda partý á hrekkjavökukvöldi, taka inn e-pillur og fremja gervi-sataníska athöfn þar sem þær fórna einni bekkjarsystur sinni. Eftir að stúlkan fellur í dá fara hinar stúlkurnar að upplifa það sem þær telja vera spádómlegar sýnir af henni. Þetta leiðir til fjöldaofsahræðslu sem breiðist út um skólann og samfélagið allt.

Hópur sem telur yfir 100 þúsund manns hefur mótmælt þáttaröðinni og staðið að undirskriftasöfnun. Vill hópurinn meina að þættirnir séu að „saurga trú milljóna kristinna fjölskyldna“.

Áður en þættirnir komu út þann 11. nóvember sendi hópurinn bréf til Peter Rice, yfirmanns efnisgerðar hjá Netflix, þar sem sagði: 

„Eftir örfáa daga mun Netflix senda efni inn á kristin heimili sem ekkertt foreldri myndi nokkurn tímann vilja hleypa þar inn. Þann 11. nóvember gefur Netflix út alla átta þætti The Body á heimsvísu. Þar koma við sögu kristnar skólastúlkur, myrk vígsluathöfn, djöfullinn og „spádómlegar sýnir“. Þú hefur varið árum í að kenna dóttur þinni að biðja. Netflix vill kenna henni að bænir leiði til djöfulsins. Og það gerir Netflix fyrir þína peninga.“ Í hverjum mánuði greiða kristnar fjölskyldur Netflix, sem síðan ver peningunum í að sýna trú þeirra fyrirlitningu. Þegar þættirnir eru komnir inn í stofuna þína og í síma unglingsins þíns, er skaðinn skeður. Enginn getur snúið því við.“

Framleiðslustjórarnir Quinn Shephard og Gina Gammell hafa greint frá því að þær hafi þurft að kafa djúpt í eigin reynslu úr framhaldsskóla til að færa þáttunum raunveruleikablæ. Gammell, sem er ekki kristin, gekk sjálf í kristinn framhaldsskóla sem var eingöngu fyrir stúlkur.

„Það er kominn tími til að sýna fram á að Netflix hafi rangt fyrir sér. Hægt er að hunsa einstaka kvartanir, en þegar kristið fólk úr öllum kirkjudeildum stendur saman, finnur Netflix fyrir því í fjölda áskrifenda. Auðvelt er að hunsa eina undirskrift, en ekki hundruð þúsunda. Við þurfum eins margar undirskriftir og mögulegt er til að fá Netflix til að hætta við sýningar á The Body,“ sagði einnig í bréfi hópsins til Netflix.

Netflix hefur ekki sent frá sér opinbera yfirlýsingu vegna andstöðunnar, eða vegna undirskriftasöfnunar CitizenGO þar sem krafist er að þáttaröðin verði tekin úr sýningu. Markmiðið með undirskriftasöfnuninni er að ná 200.000 undirskriftum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab