Risavaxin fjársvikaákæra: Önnur kona ákærð með Ástríði

Ákæra gegn Ástríði Kristínu Bjarnadóttur fyrir fjársvik og þjófnaði er óvenjulega umfangsmikil. Mikið hefur verið fjallað um mál hennar í DV en hún sat sumarið 2023 í 12 vikur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á meintum fjársvikum hennar gagnvart fjölda karlmanna. Ákæran var lengi á leiðinni en var gefin út af hálfu Lögreglustjórans í Reykjavík í lok september. Fyrirtaka verður í málinu fimmtudaginn 19. nóvember, við Héraðsdóm Reykjaness, en dagsetning aðalmeðferðar hefur ekki verið ákveðin.

Sjá einnig: Ástríður loks ákærð  – Sat 12 vikur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á fjársvikum

Ákæran er óvenjulega löng eða 35 blaðsíður og brotaþolar eru 13 talsins. Ástríður er ákærð fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika, þjófnaði og tilraun til þjófnaðar og stóðu meint brot frá 25. apríl 2018 til 21. nóvember árið 2023. Af því er ljóst að einhver brotanna sem ákært er fyrir voru framin eftir að Ástríður losnaði úr gæsluvarðhaldi síðsumars 2023.

Hún er í fyrsta lagi sökuð um að hafa fengið 13 einstaklinga með skipulögðum blekkingum til að afhenda sér og samverkakonu sinni fjármuni undir því yfirskini að um lán væri að ræða, þrátt fyrir að henni mætti vera ljóst að hún hafði ekki möguleika á að endurgreiða lánin, og að hafa styrkt ranga hugmynd brotaþola um greiðslugetu hennar en þeir vissu ekki af lánveitingum hvers annars til hennar.

Nema þessar upphæðir samtals tæplega 19 milljónum króna.

Tók tíu milljónir að láni í nafni brotaþolanna

Í annan stað er Ástríður sökuð um að hafa blekkt banka og lánafyrirtæki til að veita lán í nafni brotaþolanna en Ástríður komst inn á netbankaaðganga og greiðslumiðlunaraðganga mannanna og komst þannig yfir rétt rúmlega 10 milljónir króna.

Hún er sökuð um að svíkja út vörur og þjónustu með greiðslukorti brotaþola fyrir rúmlega 600 þúsund krónur.

Ennfremur er hún sökuð um að hafa millifært af reikningum mannanna, eftir að hafa fengið aðgang að netbönkum þeirra, samtals 10.353.730.

Ljóst er því að samkvæmt ákærunni nema fjársvik og þjófnaðir Ástríðar gagnvart þessum 13 brotaþolum samtals um 40 milljónum króna.

Sveik yfir 12 milljónir af einum og sama manninum

Brotaþolarnir eru á ýmsum aldri en allnokkrir þeirra voru að nálgast efri ár. Einhverjir mannanna glíma við þroskaskerðingu, sem mun hafa auðveldað Ástríði að blekkja þá og komst yfir rafræn skilríki þeirra og fá aðgang að netbönkum þeirra.

Elsti maðurinn var um sjötugt. Hann er sá maður sem mestu fjárhæðirnar voru sviknar af og líka ágætt dæmi um hvaða aðferðum var beitt við brotin.

Hún er í fyrsta lagi sökuð um að hafa blekkt manninn til að lána sér fé og vakið honum rangar hugmynd um að hún væri fær um að endurgreiða honum. Þessar svokölluðu lántökur hennar hjá manninum námu samtals rúmlega 10 milljónum króna og voru færslurnar um 100 talsins, oft lágar upphæðir, stundum niður í örfá þúsund eða nokkur hundruð, en hæstu upphæðirnar voru 250 þúsund.

Í annan stað blekkti hún manninn til að veita sér aðgang að rafrænum skilríkjum hans og komst þannig inn á netbanka hans, þaðan sem hún millifærði til sín 3,6 milljónir króna.

Í þriðja lagi sveik hún út vörur og þjónustu með kreditkorti hans fyrir 413 þúsund krónur.

Í fjórða lagi blekkti hún lánastofnanir til að veita sér lán í nafni mannsins, Landsbanka, þ.e.a.s. Aur app Arion banka og Íslandsbanka, samtals rúmlega 2 milljónir króna.

Peningaþvætti og vitorðskona

Ástríður er ákærð fyrir peningaþvætti og sömuleiðis samverkakona hennar. Þar er um að ræða sextuga erlenda konu sem búsett er hér á landi. Í þessum ákærulið er Ástríður ákærð fyrir að hafa í tímabilinu 3. janúar 2017 til 5. maí 2023, aflað sér, geymt og nýtt ávinning af auðgunarbrotum. Er hún sögð hafa nýtt ávinning brotanna til eigin framfærslu og til fjárhættuspila. Samtals nema þessar upphæðir hvorki meira né minna en rétt tæplega 63,4 milljónum króna.

Hluti af millifærslum brotaþolanna fóru inn á reikning erlendu konunnar. Sú er sömuleiðis ákærð fyrir peningaþvætti, með því að hafa mótttekið ávinning af brotum Ástríðar að fjárhæð rúmlega 4,1 milljón króna.

Aðeins fjórir með bótakröfur

Aðeins fjórir brotaþolar af 13 gera bótakröfur á hendur Ástríði og þar á meðal er ekki sá sem hún er sökuð um að hafa svikið hæstu fjárhæðirnar út úr. Bótakröfur virðast nema sambærilegum upphæðum og Ástríður er sökuð um að hafa svikið út úr viðkomandi.

Sem fyrr segir, er fyrirtaka í málinu á morgun, 19. nóvember, en dagsetning aðalmeðferðar hefur ekki verið ákveðin. Ólíklegt er að hún fari fram fyrir áramót. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab