Leggja til viðbótarlán upp á 6.340 milljarða króna
Evrópusambandið hefur lagt til að aðildarríkin veiti Úkraínu 45 milljarða evra, eða um 6.340 milljarða króna, viðbótarlán til að brúa fjárlagahalla Kænugarðs á næsta ári.
Fjármagnið myndi dekka tvo þriðju hluta þess 70 milljarða evra gats sem blasir við úkraínskum stjórnvöldum á næsta ári. ESB hvetur aðra stuðningsaðila Úkraínu til að leggja fram afganginn.
„Fimm árum eftir að þetta árásarstríð hófst stendur Evrópa sameinuð. Við erum jafn staðráðin og áður í að styðja Úkraínu í stríði og friði,“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
„Við teljum að þetta sé besta leiðin til að styrkja stöðu Úkraínu við samningaborðið og Úkraína þarf aðeins að endurgreiða lánið þegar Rússland hefur greitt fyrir það tjón sem það hefur valdið í Úkraínu.“
Leiðtogar ESB munu ræða lánið á leiðtogafundi í Brussel í næstu viku í von um að ná samkomulagi.
ESB er um þessar mundir að greiða út 90 milljarða lán til Kænugarðs sem vonast var til að myndi duga landinu til loka næsta árs.
En eftir því sem Rússar hafa hert árásir sínar er orðið ljóst að það fé nægir ekki.
Nýja lánið yrði með sama sniði og núverandi lán og fjármagnað með lántöku gegn svigrúmi í sameiginlegum fjárlögum ESB.
Það yrði einnig háð því að úkraínsk stjórnvöld haldi áfram umbótum.
Þótt markmiðið sé að ná samkomulagi í næstu viku hefur fjármögnunarmálið nú fléttast saman við víðtækari og erfiðar samningaviðræður um næstu sameiginlegu fjárlög ESB.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
