Áhugaverðar slúðursögur um Haaland og Liverpool

Spænski miðillinn Fichajes birti áhugaverða frétt í dag þar sem það er fullyrt að Liverpool sé líklegasta enska félagið til að hreppa Erling Braut Haaland frá Manchester City næsta sumar. 

Búist er við að City fái þunga refsingu vegna fjárhagsbrota sinna á þessari leiktíð og fari svo er líklegt að bestu leikmenn liðsins fari. 

Haaland er að sjálfsögðu þar á meðal, en hann hefur einnig verið orðaður við Barcelona, Real Madrid og Evrópumeistara Paris Saint-Germain. 

Fichajes segir að verðmiðinn á norska framherjanum yrði um 125 milljónir punda, en hann er samningsbundinn City til 2034.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab