Ferðamaður á leið til Íslands furðar sig á íslenskri hefð – Vill vita hvort þetta sé satt
Erlendur ferðamaður sem er á leið til Íslands hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlinum Reddit eftir að hafa spurt hvort það sé í alvörunni algengt að íslenskir foreldrar láti ungbörn sofa úti í kuldanum.
Spurningin hefur kallað fram fjölmörg svör og virðist þessi norræna venja koma sumum útlendingum verulega á óvart.
„Ég er á leið til Íslands fljótlega og því meira sem ég les, því oftar rekst ég á sögur um að foreldrar skilji barnavagna eftir úti með sofandi börnum, jafnvel þegar kalt er í veðri,“ skrifar ferðamaðurinn.
Hann segist ekki vera að dæma íslenska foreldra heldur vilji einfaldlega vita hvort þetta sé enn viðtekin venja eða gömul saga sem gangi manna á milli.
Öfundar samfélagið
Viðbrögðin láta ekki á sér standa og margir benda á að útisvefn ungbarna sé vel þekktur víða á Norðurlöndum.
Einn þátttakandi segir að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur þótt það sjái barnavagn fyrir utan kaffihús.
„Þau skilja börnin ekki eftir úti dögum saman. En ef þú sérð barnavagn fyrir utan kaffihús skaltu bara láta hann í friði. Það er allt í lagi,“ skrifar viðkomandi.
Annar segist öfunda samfélög þar sem foreldrar upplifi sig nógu örugga til að leyfa börnum sínum að sofa utandyra á meðan þeir fá sér að borða.
„Ég öfunda virkilega samfélag þar sem fólk upplifir sig nógu öruggt til að skilja börnin sín eftir úti á meðan það borðar á kaffihúsi,“ skrifar hann.
Nokkrir þátttakendur frá Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Danmörku lýsa því hvernig þeir hafi sjálfir látið börnin sín sofa úti, jafnvel yfir vetrarmánuðina.
Einn segir mikilvægt að klæða börnin vel, hafa hlustunartæki í vagninum og fylgjast með þeim.
Venjur að breytast?
Þótt íslenskir foreldrar hafi lengi haft þá tilhneigingu að láta börn sína sofa úti í barnavögnum gæti þessi venja verið að breytast.
Í fyrrasumar steig hjúkrunarfræðingurinn Herdís Storgaard fram og sagði að foreldrar ættu ekki að láta börn sín sofa úti í vagni. Komu þessar ráðleggingar meðal annars fram í nýjum leiðbeiningum Heilsuveru til foreldra og dagforeldra sem Herdís skrifaði.
Var bent á að dýnur í barnavögnum og kerrum uppfylltu ekki kröfur um öndunarprófun og þar af leiðandi ættu börn ekki að sofa þar eftirlitslaus.
Í viðtali við RÚV tók Helga Elídóttir, formaður Félags íslenskra barnalækna, undir þessi nýju viðmið og benti á að þekkingu á öryggismálum hefði fleygt fram síðustu ár.
„Við vitum í dag betur hvað það er sem er ákjósanlegast til að hafa sem best öryggi í kringum ungabörn þegar þau sofa. Og þá er það í rauninni bara að hafa það eins einfalt og hægt er,“ sagði hún.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗