Kveður Keflvíkinga

Marin Mudražija verður ekki áfram hjá Keflavík.

Marin Mudražija verður ekki áfram hjá Keflavík. Ljósmynd/Keflavík

Króatíski framherjinn Marin Mudražija verður ekki áfram í herbúðum Keflavíkur í Bestu deild karla í fótbolta.

Hann lék 22 leiki og skoraði fjögur mörk fyrir Keflavík í Bestu deildinni á nýafstaðinni leiktíð en hann átti einnig þátt í að koma liðinu upp um deild þar sem hann skoraði átta mörk í 25 leikjum í B-deildinni 2025.

Framherjinn er 31 árs og hefur komið víða við á ferli sínum og meðal annars leikið á Indlandi, í Singapúr, Albaníu og Rúmeníu.

„Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Marin kærlega fyrir hans framlag til félagsins, bæði innan vallar sem utan, og óskar honum alls hins besta í framtíðinni“ segir í tilkynningu Keflvíkinga.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab