Fengu ekki að skila milljónunum: Prófa birtusellur
Starfsmenn Ljósorku hófu vinnu að uppsetningu birtusellanna á Sólvangi í gærmorgun. Ljósmynd/Katý Bjarnadóttir
Tjörneshreppur hefur hafið áhugavert verkefni sem felst í því að setja birtusellur, sem áður voru gjarnan nefndar sólarsellur, á þak félagsheimilis sveitarfélagsins, Sólvangs. Markmiðið er að sellurnar framleiði næga raforku til að anna rafmagnsþörf hússins.
Að sögn Katýjar Bjarnadóttur, sveitarstjórnarfulltrúa í Tjörneshreppi, er tilgangurinn með því að setja sellurnar upp núna að kanna hvort þær geti annað rafmagnsþörfinni yfir dimmustu mánuði ársins. Ef tilraunin gefur góða raun mun sveitarfélagið að líkindum bjóða íbúum að setja birtusellur á þök húsa sinna.
4,6 milljónir á haus
Í fundargerðum sveitarfélagsins er þetta kallað birtuselluverkefni.
„Við ætlum að athuga hvernig þetta reynist áður en við setjum þetta á íbúðarhúsnæði,“ segir Katý.
Að sögn hennar er verkefnið meðal annars til komið vegna þess að sveitarfélagið fékk ekki að skila fólksfækkunarframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á síðasta ári. Athygli vakti þegar Tjörneshreppur reyndi að skila framlaginu, sem nam 248 milljónum króna, en fékk það ekki.
Í upphafi árs bjuggu 53 íbúar í Tjörneshreppi og nemur framlagið því rúmum 4,6 milljónum króna á hvern íbúa. Fyrirtækið Ljósorka vinnur að verkefninu með sveitarfélaginu. „Tilgangurinn er að gera búsetuna betri.“
Dimmustu mánuðirnir engin tilviljun
Sveitarfélagið hefur áður styrkt íbúa með því að setja upp varmadælur utandyra. Íbúarnir þurftu sjálfir að standa straum af kostnaði við að setja upp viðeigandi ofnakerfi eða gólfhita innanhúss. Nú er hins vegar hugmyndin að sveitarfélagið greiði allan kostnað við uppsetningu birtusella hjá íbúum.
„Já, við ætlum að skoða hvernig við getum útfært það,“ segir Katý. Aðspurð segir hún það enga tilviljun að tilraunin sé gerð núna í nóvember. „Við ætlum að sjá hvernig þetta virkar yfir þessa dimmustu mánuði.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗