Blómkálssúpan fær ljúffenga uppfærslu
Helga Margrét Gunnarsdóttir notar blómkálssúpu frá Toro sem grunn og bætir við bökuðu blómkáli, kartöflum, lauk og hvítlauk. Ljósmynd/Aðsend
Blómkálssúpa með ofnbökuðu grænmeti, stökku beikoni og ristuðum kjúklingabaunum er matarmikil máltíð sem yljar á köldum dögum. Helga Margrét Gunnarsdóttir notar blómkálssúpu frá Toro sem grunn og bætir við bökuðu blómkáli, kartöflum, lauk og hvítlauk. Með súpunni ber hún fram grillaðar súrdeigssamlokur með bræddum osti.
Grænmetið fær að mýkjast og gyllast í ofninum áður en það er maukað og hrært saman við súpuna. Stökkt beikon og kryddaðar kjúklingabaunir setja svo punktinn yfir i-ið.
Uppskriftin er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu og hér má sjá Helgu Möggu útbúa réttinn á Instagram.
Blómkálssúpa með ofnbökuðu grænmeti
Fyrir 4–6
- 1 pakki blómkálssúpa frá Toro
- 8 dl vatn
- 2 dl mjólk
- 1 lítill blómkálshaus
- 1 laukur
- 1 heill hvítlaukur
- 2 bökunarkartöflur
- Ólífuolía, eftir þörfum
- SPG-krydd frá Kryddhúsinu, eftir smekk (salt, pipar og hvítlaukur)
- Grænmetisparadís frá Kryddhúsinu, eftir smekk
- 5 dl vatn til að mauka með grænmetinu
Ofan á súpuna
- 150 g beikon, eða eftir smekk
- 1 dós kjúklingabaunir
- Ólífuolía, eftir þörfum
- SPG-krydd frá Kryddhúsinu, eftir smekk
- Paprikukrydd, eftir smekk
- Fersk steinselja, má sleppa
Grillaðar súrdeigssamlokur
- Súrdeigsbrauð
- Rifinn ostur
Aðferð
- Hitið ofninn í 180 °C.
- Skerið blómkálið, laukinn og kartöflurnar í bita. Skerið ofan af hvítlauknum þannig að sjáist í geirana.
- Setjið grænmetið á ofnplötu, hellið ólífuolíu yfir og kryddið með SPG og Grænmetisparadís.
- Skolið kjúklingabaunirnar og þerrið vel svo þær verði stökkari. Veltið þeim upp úr ólífuolíu, SPG og paprikukryddi og dreifið á aðra ofnplötu.
- Raðið beikonsneiðunum á þriðju plötuna og setjið allt í ofninn. Takið beikonið út eftir um 20 mínútur eða þegar það er orðið stökkt. Leggið það á eldhúspappír svo umframfita renni af og skerið síðan í litla bita.
- Grænmetið og kjúklingabaunirnar þurfa um 35 mínútur í ofninum eða þar til grænmetið er orðið mjúkt og gyllt og baunirnar stökkar.
- Útbúið súpuna á meðan úr 8 dl af vatni og 2 dl af mjólk samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Kreistið bakaða hvítlaukinn úr hýðinu og setjið í blandara ásamt hinu ofnbakaða grænmeti og 5 dl af vatni. Maukið þar til blandan er slétt.
- Bætið grænmetismaukinu út í súpuna og hrærið vel saman.
- Setjið rifinn ost á milli súrdeigsbrauðsneiða og grillið samlokurnar þar til osturinn er bráðinn og brauðið stökkt.
- Berið súpuna fram með beikoni, ristuðum kjúklingabaunum og ferskri steinselju yfir og grilluðum ostasamlokum til hliðar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/26/1692691.jpg)
