Lagði áherslu á góð samskipti við Bandaríkin

Trump og Xi við komu Bandaríkjaforseta til Kína í morgun.

Trump og Xi við komu Bandaríkjaforseta til Kína í morgun. AFP/Mandel Ngan

Xi Jinping, forseti Kína, sagði við Donald Trump í dag að hann vildi „uppbyggilegt og stefnumótandi stöðugt samband“ milli Kína og Bandaríkjanna þegar hann tók á móti Bandaríkjaforseta á flugvellinum í Shenzhen, að því er Xinhua greindi frá.

„Ég hlakka til ítarlegra skoðanaskipta við þig um mikilvæg málefni er varða samskipti Kína og Bandaríkjanna, samstarf á Asíu- og Kyrrahafssvæðinu og stöðu heimsmála, með það að markmiði að efla uppbyggilegt og stefnumótandi stöðugt samband milli þjóða okkar, samband sem byggir á gagnkvæmri virðingu, sanngirni og gagnkvæmni,“ sagði Xi degi fyrir formlegar viðræður við Trump og þríhliða leiðtogafund með Vladímír Pútín Rússlandsforseta.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab